Fréttir

Fyrirlestur um nýjar grunnleiðbeiningar í geislavörnum.

3.1.2005

Alþjóða geislavarnaráðið ( International Commission on Radiological Protection, ICRP ) vinnur nú að nýjum grunnleiðbeiningum um geislavarnir en þær leiðbeiningar sem nú er stuðst við komu út í riti ICRP nr. 60 árið 1990. Framkvæmd geislavarna í flestum ríkjum heimsins byggir á leiðbeiningum ICRP.

Drög að nýjum leiðbeiningum voru settar á heimasíðu ráðsins (www.icrp.org) nú í sumar til kynningar og umsagnar. Miðað við þann fjölda umsagna og athugasemda sem borist hafa má gera ráð fyrir að nýjar grunnleiðbeiningar verði gefnar út á árinu 2006.
Vísindaritari ICRP, Dr. Jack Valentine, verður á Íslandi 24. og 25. janúar og hefur hann boðist til þess að halda fyrirlestur um nýjar grunnleiðbeiningar ICRP. Ekki hefur verið ákveðið hvar eða hvenær fyrirlesturinn verður haldinn.
Þeir sem áhuga hafa á nánari upplýsingum er velkomið að hafa samband við Geislavarnir ríkisins.