Fréttir
Farsímar og heilsufar - ný skýrsla frá Bretlandi.
Geislavarnastofnun Bretlands hefur gefiđ út nýja yfirgripsmikla skýrslu um farsíma og heilsufar. Sjá nánar á vef stofnunarinnar, ţar er finna tengil í útdrátt skýrslunnar og hana í heild sinni.
Skýrslan hefur orđiđ tilefni nokkurrar fjölmiđlaumfjöllunar í Bretlandi, t.d. í The Times, The Independent og The Guardian (í leiđara og grein).
Í skýrslunni er lagt mat á niđurstöđur margra vísindarannsókna sem birst hafa síđan svonefnd Stewart skýrsla um farsíma og heilsufar kom út áriđ 2000.
Helsta niđurstađa Stewart skýrslunnar áriđ 2000 var ađ mat á ţeim gögnum sem ţá lágu fyrir benti ekki til ađ notkun farsíma hefđi í för međ sér skađleg áhrif á heilsu ţeirra sem ţá nota. Áhersla var lögđ á mikilvćgi frekari rannsókna til ađ draga úr óvissuţáttum um langtímaáhrif sem og ađ vegna óvissunar vćri rétt ađ gćta varúđar viđ notkun farsíma sérstaklega hvađ varđar börn og unglinga.
Síđan Stewart skýrslan kom út áriđ 2000 hafa birst skýrslur sem gefa til kynna hugsanleg skađleg áhrif farsímanotkunar á heilsufar. Erfitt hefur reynst ađ stađfesta slíkar niđurstöđur.
Helsta niđurstađa nýju skýrslunnar er ađ ekki séu enn fyrir hendi neinar beinar sannanir um ađ notkun farsíma hafi skađleg áhrif á heilsufar notenda en vegna óvissuţátta sem enn séu fyrir hendi um hugsanleg langtímaáhrif sé áfram rétt ađ gćta varúđar sérstaklega hvađ varđar börn og unglinga. Áfram er lögđ áhersla á mikilvćgi frekari rannsókna m.a. vegna örrar tćkniţróunnar og aukinnar og fjölbreytilegrar notkunar.
Segja má ađ nýja skýrslan undirstriki ađ ekki hafi enn tekist ađ eyđa ţeirri óvissu sem var áriđ 2000 um langtímaáhrif geislunar frá farsímum svo og ađ á sama tíma hafa komiđ fram nýjar vísbendingar um hugsanleg skađleg áhrif hennar. Á vegum Alţjóđa heilbrigđismálastofnunarinnar fer nú fram stór alţjóđleg rannsókn á áhrifum notkunar farsíma á heilsufar notenda. Sú rannsókn gćti gefiđ mikilvćgar niđurstöđur á nćstu árum.
Norrćnar geislavarnastofnanir gáfu út sameiginlega yfirlýsingu um farsíma og heilsufar ţann 21. september 2004, ţar sagđi m.a. Norrćn geislavarnayfirvöld telja ađ engin vísindaleg sönnun hafi fengist fyrir skađlegum heilsufarslegum áhrifum af farsímafjarskiptum, hvorki frá sendistöđvum né frá handtćkjum, sem nota sendistyrk neđan viđmiđunarmarka og grunngilda sem Alţjóđa geislavarnaráđiđ um ójónandi geislun (ICNIRP) hefur mćlt međ.
Í yfirlýsingunni var engu ađ síđur mćlt međ ađ vegna óvissu um hugsanleg langtímaáhrif vćri gćtt ákveđinnar varkárni og dregiđ úr allri óţarfa geislun frá farsímum. Í ţessu samhengi var mćlt međ notkun á handfrjálsum búnađi sem dregur umtalsvert úr rafsegulsviđi nálćgt höfđi. Jafnframt var vakin athygli á ţví ađ ţörf vćri á frekari rannsóknum á hugsanlegum langtímaáhrifum af farsímanotkun.
Niđurstöđur nýju skýrslunnar frá Geislavarnastofnun Bretlands gefa ekki tilefni til sérstakra ađgerđa umfram ţađ sem ţegar hefur veriđ lagt til varđandi notkun á handfrjálsum búnađi og hóflega notkun farsíma.
Í ljósi stóraukinnar farsímanotkunar barna og unglinga er ţó rétt ađ benda á ađ börn og unglingar geta veriđ viđkvćmari fyrir geislun frá farsímum en fullorđnir og ţví mćla Geislavarnir ríkisins međ ađ farsímanotkun ţeirra sé ekki meiri en nauđsyn krefur.
Geislavarnir ríkisins fylgjast grannt međ ţróun ţessara mála og ţeim rannsóknum sem fram fara á langtímaáhrifum farsímanotkunar.