Fréttir

Fyrirlestur um breyttar áherslur í geislavörnum, mánudaginn 24. janúar, n.k. kl. 17:15

18.1.2005

Vísindaritari Alþjóða geislavarnaráðsins (International Commission on Radiological Protection, ICRP) Dr. Jack Valentin, heldur fyrirlestur um breyttar áherslur og nýjar grunnleiðbeiningar ICRP í húsi Verfræði- og raunvísindadeildar, VR II, stofu 158, mánudaginn 24. janúar 2005, kl. 17:15. Fyrirlesturinn sem verður á ensku er öllum opinn.


ICRP vinnur nú að nýjum grunnleiðbeiningum um geislavarnir en þær leiðbeiningar sem nú er stuðst við komu út í riti ICRP nr. 60 árið 1990. Framkvæmd geislavarna í flestum ríkjum heimsins byggir á leiðbeiningum ICRP. Breyttar áherslur sem ICRP boðar hafa vakið hörð viðbrögð víða og orðið tilefni mikillar umfjöllunar á alþjóðlegum vettvangi meðal annars hjá Kjarnorkumálastofnun OECD í París sem og hjá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni í Vínarborg.


Drög að nýjum leiðbeiningum voru settar á heimasíðu ráðsins (www.icrp.org) nú í sumar til kynningar og umsagnar. Miðað við þann fjölda umsagna og athugasemda sem borist hafa má gera ráð fyrir að nýjar grunnleiðbeiningar verði gefnar út á árinu 2006.

Þeir sem áhuga hafa á nánari upplýsingum er velkomið að hafa samband við Geislavarnir ríkisins.

ICRP rit á Vefnum

Heimasíða ICRP er:

http://www.icrp.org/

Á vefsetri ICRP má fá ókeypis aðgang að ýmsum ritum á meðan þau eru ennþau drög til kynningar, t.d.

Drög að nýjum grunnleiðbeiningum http://www.icrp.org/icrp_rec_june.asp

Drög að nýrri samantekt um mat á krabbameinsáhættu af völdum jónandi geislunar (Low-dose Extrapolation of Radiation-Related Cancer Risk): http://www.icrp.org/draft_cancer.asp

Eftir að drög hafa verið samþykkt til útgáfu, þá eru þau birt í annálum ICRP. Áskrift að slíkum ritum er seld. Vegna landsáskriftar Íslands að fjölda vísindarita (sbr. hvar.is), þá má hinsvegar nálgast nýlega árganga rita ICRP endurgjaldslaust á:

Rit ICRP hjá Science Direct http://www.sciencedirect.com/science/journal/01466453