Fréttir
Vefsíða um geislavarnir og myndgæði (DIMOND)
Undanfarin 10 ár hefur 13 manna hópur vísindamanna frá 11 löndum Evrópusambandsins, staðið að rannsóknaverkefnum í myndgerðartækni með fjárstuðningi Evrópusambandsins. Á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var í Belgíu síðastliðið sumar voru kynntar margar af helstu niðurstöðum hópsins, sem einnig birtast á vefsetri hans.
Þær niðurstöður og leiðbeiningar sem birtast á þessari síðu eiga erindi til allra sem vinna við læknisfræðilega myndgreiningu, geislavarnir eða röntgenmyndgerð, eða stunda rannsóknir og þróun á þessum sviðum.
Niðurstöðurnar fjalla m.a. um (enskir titlar þátta verkefnisins):
- Image Quality and Dose Management for Digital Radiography
- Physical Aspects of Image Quality
- Reference Values and Justification
- Clinical Evaluation Projects: Interventional Radiology
- Interventional Cardiology
- Digital Mammography