Fréttir
Samvinna við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um fræðslu fyrir slökkviliðsmenn
Slökkvilið höfðuborgarsvæðisins gekkst fyrir endur- og símenntun um hættuleg efni og er þessu námskeiði nú nýlokið. Það var haldið vikulega (fyrir mismunandi vaktir hjá slökkviliðinu) á hverjum þriðjudegi, frá 11. janúar til 1. mars. Áætlað er að 105 hafi sótt námskeiðið og eru það flestir slökkviliðsmenn sem raunhæft var að ná til á þessu tímabili (t.d. ekki í leyfi). Geislavarnir ríkisins lögðu til fræðslu innan námskeiðsins um geislavirk efni, eðli þeirra og hvað helst bæri að varast fyrir slökkviliðsmenn miðað við íslenskar aðstæður.
Notkun geislavirkra efna er lítil hérlendis miðað við flest grannlönd okkar (sérstaklega þau sem hafa kjarnorkuiðnað). Engu að síður er mikilvægt að allir sem gætu þurft að eiga við geislavirk efni vegna starfs síns búi yfir nægilegri þekkingu. Jónandi geislun er ósýnilegur ógnvaldur og það þarf vissa grunnþekkingu til að geta metið hvenær áhætta er marktæk og hvenær hún er hverfandi lítil. Fyrir viðbragðsaðila er það ekki síst mikilvægt að vita hvenær ekki er þörf á aukinni aðgæslu vegna hugsanlegs áhættuþáttar á vettvangi.
Geislavarnir ríkisins stefna að því að eiga samstarf við fleiri aðila um viðeigandi fræðslu fyrir aðrar stéttir starfsfólks, auk þeirrar fræðslu sem hefur verið veitt starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og umsjónarmönnum geislavirkra efna.