Fréttir
Fræðsluefni og leiðbeiningar um geislavirk efni í skólum
Nýlega gáfu Geislavarnir út fræðsluefni um geislavirk efni í skólum, rit GR 05:01. Í þessu riti eru skýrðar reglur um meðferð geislavirkra efna í skólum en er þörf hefur verið á sérstökum skýringum þar sem almennari reglur um geislavirk efni eiga oft ekki við. Í ritinu kemur fram að þörf er á kennslu um geislavirk efni og að í námsskrám sé gert ráð fyrir verklegum æfingum. Ritið er hugsað fyrir bæði grunn- og framhaldsskóla en bent er á að í grunnskólum mætti gera verklegar æfingar með því að mæla náttúrulega geislun og komast þannig hjá því að flytja inn geislavirk efni.
Fræðsluefnið er aðgengilegt á vefsíðu Geislavarna.