Fréttir

Íslenskar niðurstöður kynntar á norrænum fundi vinnuhóps um geislavistfræði

25.4.2005

Geislavarnir ríkisins hafa síðan árið 2002, tekið þátt í samnorrænu rannsóknarverkefni í geislavistfræði. Megintilgangur verkefnisins er að finna heppilegar lífverur til að mæla styrk og meta tilfærslu geislavirkra efna í umhverfinu, s.k. vísitegundir. Íslenskar niðurstöður voru kynntar og ræddar á ársfundi verkefnisins í Osló 18. – 19. apríl 2005.

Geislavarnir ríkisins hafa síðan árið 2002, tekið þátt í samnorrænu rannsóknarverkefni í geislavistfræði sem ber heitið „New indicator organisms for environmental radioactivity“ (skammstafað INDOFERN). Þátttakendur eru frá öllum norðurlöndunum, alls sex þjóðlöndum, og koma frá geislavarna-, háskóla- og rannsóknarstofnunum. Verkefnið er innan norræna rannsóknasamstarfsins NKS (norrænar kjarnöryggisrannsóknir, http://www.nks.org/). Fulltrúi Geislavarna í verkefninu er Magnús Á. Sigurgeirsson.

Megintilgangur verkefnisins er að finna heppilegar lífverur til að mæla styrk og meta tilfærslu geislavirkra efna í umhverfinu , sk. vísitegundir. Skilyrði er að tegundirnar séu útbreiddar og að auðvelt sé að safna þeim. Þátttaka Íslendinga í verkefninu er mikilvæg, því hún tryggir að til sé þekking á tegundum sem nota má til að bera saman þessa tilfærslu hérlendis og í grannlöndum okkar.

Mældar hafa verið ýmsar sjávar- og þurrlendislífverur. Úr sjó hafa einkum verið mæld sýni úr þangplöntum, skeldýrum og kröbbum en einnig  úr sel og hval. Af þurrlendi hafa verið mældar ýmsar plöntutegundir, s.s. lyng, grös, mosar og fléttur.

Ársfundur verkefnisins var haldinn í Osló, 18.-19. apríl og voru íslenskar niðurstöður kynntar og ræddar þar auk niðurstaðna annarra þátttökuþjóða.  Verkefninu lýkur á þessu ári og verða helstu niðurstöður þess kynntar á NKS ráðstefnu í Eistlandi í október. Ráðgert er að niðurstöður verkefnisins verði fljótlega birtar í vísindatímariti.