Fréttir

Endurvinnsla og kjarnorkuiðnaður áfram til umræðu

19.5.2005

Umræða um framtíð kjarnorkuiðnaðar hefur haldið áfram í innlendum og erlendum fjölmiðlum. Miðvikudaginn 11. maí var stutt viðtal í Ríkisútvarpinu við einn sérfræðinga Geislavarna ríkisins um kjarnorkuiðnað.

Kjarnorkuiðnaður og endurvinnsla hafa haldið áfram að vera til umræðu, jafnt hérlendis sem erlendis. Sem dæmi má nefna: Endurvinnslu í Sellafield, framtíð kjarnorkuiðnaðar í Bretlandi, umdeild uppbygging í N-Kóreu og Íran vegna hugsanlegrar framleiðslu kjarnorkuvopna, nýting kjarnorku í Kína til að mæta vaxandi orkuþörf landsins. Miðvikudaginn 11. maí var Sigurður Emil Pálsson, eðlisfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins, í viðtali í þættinum Morgunvaktin hjá Ríkisútvarpinu. Rætt var mjög stuttlega um helstu skref kjarnorkuiðnaðar og hvaða hlutverki endurvinnsla þjónar.

Upptöku af þessum lið þáttarins má finna á vef RÚV í allt að 2 vikur eftir útsendingu:

http://servefir.ruv.is/dagskra/streaming/default.asp?channel=2&date=2005-05-11&file=4205771/3

Þar sem líklegt er að kjarnorkuiðnaður haldi áfram að vera til umræðu í fréttum, þá mun fræðsluefni um undirstöður hans birtast bráðlega á vef Geislavarna.