Fréttir

Ljósabekkjanotkun unglinga hefur minnkađ verulega á einu ári

23.5.2005

Um 13% unglinga á aldrinum 12-15 ára segjast hafa fariđ í ljós á síđustu tólf mánuđum, samkvćmt nýrri könnun IMG Gallup. Í könnun fyrir einu ári svöruđu 25% sömu spurningu játandi.

Um 13% unglinga á aldrinum 12-15 ára segjast hafa fariđ í ljós á síđustu tólf mánuđum, samkvćmt nýrri könnun IMG Gallup. Í könnun fyrir einu ári svöruđu 25% sömu spurningu játandi. Ţessar niđurstöđur voru kynntar á ađalfundi Krabbameinsfélagsins ţann 7. maí s.l.

Könnunin nú var gerđ í mars og apríl fyrir Geislavarnir ríkisins, Krabbameinsfélagiđ, Landlćknisembćttiđ og Félag íslenskra húđlćkna, en undanfarin tvö ár hafa ţessir ađilar hvatt fermingarbörn til ađ fara ekki í ljós. Nćr helmingi minni ljósabekkjanotkun unglinga er talin til marks um ađ átakiđ hafi haft áhrif. Í könnuninni nú kom fram ađ um ţrefalt fleiri stúlkur en piltar fóru í ljós og ađ af ţeim unglingum sem fóru í ljós síđasta áriđ hafđi ađeins tíundi hver fariđ mánađarlega eđa oftar.

Fjöldi unglinga (12-15 ára) sem svarađi spurningunni í fyrri könnun var 421 en í ár var fjöldinn 433. Fullyrđa má ađ töluverđ minnkun í ljósabekkjanotkun sé tölfrćđilega marktćk. Á nćstu árum munu sömu ađilar fylgjast áfram međ ljósabekkjanotkun unglinga.

Í sambćrilegri könnun međal fullorđinna (16-75 ára), sem gerđ var um svipađ leyti, kom einnig fram ađ dregiđ hefđi úr ljósabekkjanotkun frá ţví í fyrra. Í fyrra sögđust 31% ţeirra sem svöruđu nota ljósabekki en 26% áriđ áđur. Samdrátturinn er hlutfallslega meiri međal kvenna en karla og er ekki síst í yngri aldurshópunum. Einkum hefur fćkkađ í hópi ţeirra sem hafa fariđ oft í ljós.