Fréttir
Ný bresk rannsókn: „Engar vísbendingar um ađ nálćgđ viđ kjarnorkuver auki hćttu á krabba“ (Fyrirsögn af fréttavef Morgunblađsins).
Fréttavefur Morgunblađsins birti s.l. föstudagskvöld (10.6) frétt um niđurstöđur breskrar rannsóknar ţar sem kannađ var hvort búseta nćrri kjarnorkustöđvum leiddi til aukinnar tíđni á krabbameins hjá börnum. Ţessi frétt byggđi á fréttum sem birst höfđu á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Niđurstöđurnar voru kynntar í Bretalandi fyrr um daginn og ţćr sýndu ađ engin slík aukning áhćttu var greinanleg í grennd viđ neitt breskt kjarnorkuver.
Bakgrunnur ţessa máls er ađ óháđ bresk nefnd vísindamanna, COMARE (Committee on Medical Aspects of Radiation in the Environment), hefur rannsakađ ýmsa lćknisfrćđilega ţćtti tengda umhverfisgeislun og nú á föstudaginn sendi hún frá sér skýrslu međ niđurstöđum rannsóknar á tíđni krabbameins á međal barna í grennd viđ kjarnorkustöđvar í Bretlandi. Til grundvallar var lögđ ítarleg rannsókn á 32 ţúsund tilvikum krabbameins hjá börnum á árunum 1969 – 1983. Vísindamennirnir telja svo ítarlega faraldsfrćđilega rannsókn einsdćmi. Niđurstađan sýndi enga marktćka aukningu í tíđni krabbameins hjá börnum sem bjuggu í grennd viđ neitt kjarnorkuver í Bretlandi (miđađ var viđ 25 km fjarlćgđ).
Hćrri tíđni krabbameins fannst hins vegar í grennd viđ ađrar kjarnorkustöđvar en kjarnorkuver og kom ţađ ekki á óvart, slík fylgni hefur áđur komiđ fram í rannsóknum og umfjöllun um ţćr niđurstöđur má einnig finna á vefsetri COMARE. Kjarnorkuver nýta geislavirk efni til orkuframleiđslu og mynda viđ ţađ hágeislavirkan úrgang. Ţetta er hins vegar lokađ framleiđsluferli og dreifing geislavirka efna til umhverfis getur veriđ sáralítil. Ţađ er oft meiri hćtta á ađ geislavirk efni berist til umhverfis frá öđrum kjarnorkustöđvum, t.d. ţar sem unniđ er međ hágeislavirkan úrgang eđa mikiđ magn geislavirkra efna á öđru formi. Marktćk fjölgun krabbameinstilvika hefur sést í grennd viđ ýmsar slíkar stöđvar en ţađ ţarf ţó ekki ađ hafa veriđ af völdum geislunar frá ţeim.
Niđurstöđur ţessarar rannsóknar eru í samrćmi viđ ţađ sem búist var viđ. Hún ţykir ţó renna mun traustari stođum undir ţá ályktun ađ búseta í grennd viđ kjarnorkuver ţurfi ekki ađ fela í sér aukna áhćttu vegna krabbameins. Nálgast má útdrátt skýrslunnar og skýrsluna í heild sinni á vefsetri COMARE.
Frétt Morgunblađsins
http://www.mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1143124
Frétt BBC http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/4077298.stm
Vefsetur COMARE http://www.comare.org.uk/
Fréttatilkynning COMARE um nýju rannsóknina: http://www.comare.org.uk/press_releases/comare_pr10.htm
Nýja skýrslan: http://www.comare.org.uk/documents/COMARE10thReport.pdf
Fréttatilkynningar varđandi fyrri rannsóknir: http://www.comare.org.uk/press_releases/comare_press.htm