Fréttir

Ný rannsókn frá IARC (krabbameinsrannsóknastofnun WHO) tengir aukna en litla geislun viđ litla en aukna tíđni krabbameina

6.7.2005

Breska lćknaritiđ BMJ (British Medical Journal) birti 29. júní niđurstöđur mjög fjölmennrar rannsóknar í mörgum löndum á áhrifum lítillar geislunar. Niđurstöđur renna stođum undir gildandi forsendur geislavarna, ađ lítil geislun geti aukiđ lítillega hćttu á krabbameini.

IARC (International Agency for Research on Cancer), hin virta rannsóknastofnun krabbameina, sem heyrir undir Alţjóđaheilbrigđisstofnunina, WHO, hefur birt niđurstöđur sögulegrar rannsóknar á dánartíđni vegna krabbameina međal 400 ţúsund starfsmanna í kjarnorkuiđnađi í 15 löndum. Niđurstöđurnar birtust í BMJ (sjá tengil hér fyrir neđan). Beđiđ hefur veriđ eftir ţessari rannsókn og niđurstöđum hennar međ nokkurri eftirvćntingu. Segja má ađ niđurstöđurnar styđji ţá ađferđafrćđi sem tíđkast hefur alţjóđlega í geislavörnum ţegar skađsemi jónandi geislunar er metin.

Skađsemi geislunar frá geislavirkum efnum og geislatćkjum er fyrst og fremst ţekkt vegna atvika ţar sem einstaklingar hafa orđiđ fyrir mjög mikilli geislun á skömmum tíma. Í geislavörnum er engu ađ síđur og af eđlilegum ástćđum gert ráđ fyrir ađ lítil geislun í langan tíma geti einnig veriđ skađleg (línulegt samhengi hvađ varđar aukningu krabbameina). Til ađ sýna vísindalega ađ lítil aukning í geislun hafi marktćk áhrif á aukna tíđni krabbameina ţarf ađ gera ţeim mun fjölmennari rannsóknir sem geislunin er minni.

Rannsókn IARC er ein stćrsta rannsókn sinnar tegundar sem gerđ hefur veriđ. Í henni tóku ţátt ţeir starfsmenn í kjarnorkuiđnađi sem boriđ hafa á sér geislamćli (filmur) til ađ meta gammageislun. Međalgeislaálag á mann var 19 millisievert (yfir langan tíma). Til samanburđar má geta ţess ađ geislun af náttúrulegum völdum er metin vera um 2,4 millisievert á ári á hvern jarđarbúa.

Rannsóknin sýndi ađ 1 til 2% af krabbameinsdauđsföllum međal umrćddra starfsmanna mćtti kenna geislun. (Áhćtta í kjarnorkuiđnađi er ţó minni nú vegna ţess ađ geislun ţar hefur minnkađ.) Hin litla en marktćka aukning í áhćttu á krabbameini vegna lítillar geislunar reyndist vera af sömu stćrđargráđu og mćlst hefur í rannsóknum á eftirlifendum kjarnorkusprengjanna í Japan.

Niđurstađa IARC er ađ krabbameinstíđni aukist lítilega jafnvel viđ ţá lágu geislun sem starfsmenn í kjarnorkuiđnađi verđa fyrir. Í alţjóđlegu skipulagi geislavarna hefur einmitt veriđ gert ráđ fyrir ţessu.

Tenglar: Niđurstöđur IARC birtust í British Medica Journal, sjá: http://bmj.bmjjournals.com/cgi/rapidpdf/bmj.38499.599861.E0v1

Frá skýrslunni er m.a. sagt á slóđ norsku geislavarnanna:
http://www.nrpa.no/