Fréttir
Ný kynslóð bjartra leysa og leysibenda
Framfarir í gerð leysidíóða hafa orðið til þess að æ fleiri tæki eru nú komin á markað sem nýta slíkar díóður, t.d. leysibendar. Leysibendar með rauðu ljósi hafa verið á markaði í um áratug, en nú eru komnir á markað leysibendar með grænu ljósi (bylgjulengd 532 nm). Augað er mun næmara fyrir grænu ljósi en rauðu og því virðist ljós frá grænum leysibendi meir en 10x bjartara en rauðum með sama afl. Leysibendar eru missterkir og óvarleg notkun sterkra leysibenda getur verið varasöm og þeir eru engin leikföng. Hér eru því birt ráð til þeirra sem hyggjast kaupa leysibenda eða önnur tæki sem senda frá sér leysigeisla.
Geislavarnir birtu fræðsluefni um leysa og leysibenda á vefsíðu sinni í desember 1997 og var það síðast endurskoðað 1999, en er í öllum aðalatriðum enn í gildi:
http://www.gr.is/fraedsluefni/leysar/
Þar kemur m.a. fram að það skapar vissan vanda að flokkun leysa er mismunandi í Bandaríkjunum annars vegar og flestum öðrum löndum hins vegar. Með nýjum staðli hefur verið reynt að ráða bót á þessu, flokkun samkvæmt honum er þó ekki orðin ríkjandi á markaðnum. Það gildir þó sem fyrr að til almennra nota er engin ástæða til að kaupa sterkari leysibendi en í flokki 2 (flokkar 3 og 4 eru sterkari). Afl þeirra er undir 1 mW. Leysibendar í almennri sölu í Evrópu uppfylla flestir þetta skilyrði, leysibendar á markaði í Bandaríkjunum geta geta hins vegar farið upp í 5 mW og eru þá komnir yfir mörkin.
Einnig er rétt að vekja athygli á gildandi reglugerð nr. 120/1988 um leysitæki en þar segir m.a. í 1. gr.: „Notkun öflugra leysitækja sem ljósabúnaðar á stöðum, sem almenningur hefur aðgang að, er háð leyfi og eftirliti Geislavarna ríkisins. Þau tæki teljast öflug, sem eru í 3. og 4. flokki leysitækja samkvæmt alþjóðlegri flokkun slíkra tækja".
Þeir sem vilja nota leysibenda (t.d. við fyrirlestra) ættu því að halda sig við leysibenda í flokki 2 (< 1mW) og þeir sem vilja nota leysigeisla með öðrum hætti á stöðum þar sem almenningur hefur aðgang að er bent á að hafa samband við Geislavarnir ríkisins ef um tæki í flokki 3 eða 4 er að ræða.