Fréttir

Breytingar á evrópskum stađli um ljósabekki – viđbrögđ á Íslandi

13.9.2005

Tillögur hafa veriđ gerđar um breytingar á evrópskum stađli um ljósabekki. Nái ţćr fram ađ ganga, ţá gćti ţađ ţýtt ađ meiri styrkur UV-geislunar yrđi leyfilegur í ljósabekkjum. Ţađ vćri í andstöđu viđ sameiginlegt álit norrćnu geislavarnastofnananna um ljósabekki. Geislavarnir ríkisins munu fylgjast međ ţessu máli, en of snemmt er ađ segja til um hugsanleg viđbrögđ.

Nú stendur yfir atkvćđagreiđsla um breytingatillögur á evrópskum stađli um ljósabekki. Íslensk löggjöf um ţá byggir á ţessum stađli, en hann á ađ tryggja öryggi í notkun ljósabekkja. Ţeir bekkir sem uppfylla kröfur stađalsins fá CE merkingu og eru söluvara á öllu evrópska efnahagssvćđinu.

Stađallinn hefur veriđ til endurskođunar og 20. september nćstkomandi, lýkur atkvćđagreiđslu um breytingatillögur á honum. Ţessar tillögur eru ađ nokkru leyti í andstöđu viđ sameiginlegt álit um ljósabekki, sem norrćnar geislavarnastofnanir gáfu út á síđasta ári. Óvíst er hver úrslit atkvćđagreiđslunnar verđa, en eftirfarandi er helsta álitamáliđ.

Samkvćmt núgildandi stađli er ljósabekkjum skipt í nokkra flokka og er eingöngu sett hámark geislunar fyrir einn flokk, UV-3. Ţar er hámarkiđ sett viđ gildi sem svarar til styrks útfjólublárrar geislunar sólar viđ miđbaug. Í sameiginlegu áliti Norrćnu geislavarnastofnanna er ţetta taliđ vera eđlilegt hámark, en í nýjum stađli er flokkunin ađ mestu felld niđur. Í stađinn er hámark sett á alla bekki og er miđađ viđ tvöfalda geislun sólar viđ miđbaug.

Styrkur útfjólublárrar geislunar er oft metinn međ UV-gildi (UV-index).  Til skýringar á hversu mikla aukningu á leyfilegum styrk ljósabekkja breytingin á stađlinum hefđi í för međ sér má nefna ađ mesta geislun sólar í Reykjavík um 4 stig á kvarđa UV-gildi en viđ miđbaug er hún um 12 stig ţannig ađ í sólbekkjum gćti hún orđiđ um 24 stig eđa sexfaldur hámarksstyrkur sólar í Reykjavík..

Geislavarnir ríkisins eru ađilar ađ Rafstađlaráđi Íslands, sem fer međ umbođ Íslands í evrópsku stađlasamtökunum CENELEC og fylgjast međ ţróun ţessara mála í samvinnu viđ systurstofnanir á Norđurlöndum. Viđbrögđ Íslendinga viđ hugsanlegum breytingum á stađlinum verđa líklega sams konar og hjá öđrum Norđurlandaţjóđum en of snemmt er ađ segja til um ţau á ţessu stigi.

Tenglar:

Álit norrćnu geislavarnastofnanana um ljósabekki
Tengill (frétt á vefsíđu GR)

Grein í fréttablađi sćnsku geislavarnastofnunarinnar, SSI, (á sćnsku) ţar sem nánar er sagt frá flokkun ljósabekkja og ástćđum fyrir breytingum á stađlinum:
http://www.ssi.se/tidningar/PDF/lockSSN_PDF/SSN_2_2005.pdf