Fréttir

Einum sérfræðinga Geislavarna ríkisins boðin seta í sérfræðinganefnd IAEA um stefnumótun í notkun fjarskiptatækni.

20.9.2005

Einum af sérfræðingum Geislavarna ríkisins, Sigurði Emil Pálssyni, hefur verið boðið að sitja í sérfræðinganefnd IAEA (Alþjóða kjarnorku­málastofnunarinnar) um stefnumótun í notkun fjarskipta­tækni vegna miðlunar upplýsinga í tengslum við ýmis konar geislavá. Sérfræðinga­nefndin hélt fyrsta fund sinn í Zürich í síðustu viku, 14.-16. september, og henni er ætlað að leggja skýrslu sína fyrir alþjóðlega ráðstefnu viðbúnaðar­tengla IAEA sumarið 2007.

Meginviðfangsefni nefndarinnar er að finna lausnir til að tryggja sem öruggust og skilvirkust samskipti á milli þeirra mismunandi viðbúnaðar­­kerfa sem nú eru í notkun og munu verða tekin í notun á næstu árum. Sigurður Emil benti þó á að ekki mætti gleyma að bæta notkun veftækni við miðlun upplýsinga á Vefnum, hvort heldur er til sérfræðinga eða almennings.  Í stuttu erindi benti hann á að fæst vefsetur uppfylla kröfur nútíma staðla eða eldri staðla um gerð vefsíðna.  Hann tók síðan dæmi um hvernig þetta leiðir til að Vefurinn er aðeins að skila hluta af notagildi sínu og hvernig oft megi koma upplýsingum á milli með mun hagkvæmari hætti.  Hann nefndi lausnir (sem m.a. hafa verið þróaðar á Íslandi) sem gera tölvupóstssamskipti skilvirkari.  Við notkun veftækni vegna viðbúnaðar sé mikilvægt að nota samskiptarásir sem takmarkaða auðlind, þannig sé til dæmis auðveldara að flytja samskiptin yfir á aðra rás ef ein bregst.  Sigurður Emil lagði því til að starf nefndarinnar yrði ekki takmarkað við samskipti viðbúnaðarkerfa kjarnorkuþjóðanna, heldur yrðu einnig veittar leiðbeiningar sem myndu nýtast öllum aðildarríkjum IAEA til að gera viðbúnaðarfjarskipti (t.d. um Netið) skilvirkari. 

Sérfræðinganefndin mun á næstu mánuðum vinna úr þeim hugmyndum sem fram hafa komið. Hún stefnir að því að hafa mótað megintillögur sínar sumarið 2006, þannig að prófa megi fyrir árslok 2006 hugsanlegar frumgerðir af þeim lausnum sem mælt verður með.