Fréttir

Málmsuðuvír með 2% þóríni - fræðsluefni

26.9.2005

Fræðslefni um málmsuðuvír sem inniheldur lítið magn geislavirks efnis hefur verð sett á vefsíðu Geislavarna ríkisins

Í nokkrum vörutegundum er að finna geislavirk efni í litlum mæli sem ekki þarf sérstakt leyfi frá Geislavörnum ríkisins til að nota eða flytja inn. Þar á meðal er rafsuðuvír úr þungsteini (wolfram-vír/pinni, tungsten-vír/pinni) sem blandaður er geislavirka efninu þórín og er vírinn notaður í sérstakri málmsuðu sem kölluð er TIG-suða.

Um alla málmsuðu gilda reglur Vinnueftirlits ríkisins um varnir gegn loftmengun við málmsuðu (nr. 491/1987) en engin sérstök ákvæði eru um rafsuðu með vír sem blandaður með þóríni.

Í samræmi við þá almennu reglu að forðast beri alla óþarfa geislun er það álit Geislavarna ríkisins að nota beri ógeislavirkan vír nema sérstök rök séu fyrir öðru og ávallt skuli nota búnað sem kemur í veg fyrir að ryk eða reykur sem inniheldur geislavirka efnið þórín berist ofan í öndunarfæri manna. Jafnframt skal haga vinnubrögðum þannig að sem minnst þórínblandað ryk myndist og berist út í loft á vinnustað.  Sjá nánar grein á vefsíðu Geislavarna ríkisins.