Fréttir
Ný skýrsla: Geislavirk efni í umhverfi og matvćlum á Íslandi 1989 – 2003.
Í skýrslunni eru teknar saman vöktunarmćlingar Geislavarna ríkisins á geislavirkum efnum í umhverfinu og í matvćlum frá tímabilinu 1989 til 2003. Rannsóknastofa GR hóf starfsemi sína áriđ 1989. Frá upphafi hefur veriđ lögđ áhersla á ađ mćla Cs-137 (sesín) sem er manngert efni og á ađ mestum hluta uppruna í tilraunasprengingum á 6. og 7. áratug síđustu aldar. Í tilraunum sem gerđar voru í andrúmslofti bárust geislavirk efni um jörđina međ veđrum og vindum og féllu til jarđar sem geislavirkt úrfelli. Geislavirkt sesín er einnig losađ í nokkrum mćli í frárennsli viđ endurvinnslu geislavirks úrgangs. Geislavirk efni sem losuđ eru í sjó frá endurvinnslustöđvum í N-Evrópu mćlast í hafinu fyrir norđan og vestan Ísland. Slys sem orđiđ hafa í kjarnorkuverum, s.s. í Tsjernóbyl í Úkraínu áriđ 1986, og í kjarnorkuknúnum farartćkjum hafa fram ađ ţessu haft hverfandi áhrif hér á landi. Á árunum 1994-1996 jókst mjög styrkur Tc-99 (teknetíns) í frárennsli í Írlandshaf frá Sellafield á Englandi. Nýveriđ hófust reglulegar mćlingar á teknetíni í sjó viđ Ísland til ađ kanna hvort greina megi aukningu í styrk ţess. Ţađ tekur mengandi efni um áratug ađ berast frá Írlandshafi á íslenskt hafsvćđi.
Sesín-137 er mćlt reglulega í eftirfarandi sýnaflokkum: andrúmslofti (svifryki), úrkomu, kúamjólk (ferskri mjólk og mjólkurdufti), lambakjöti, sjó, ţangi og fiski. Einnig hafa veriđ mćld ýmis önnur sýni sem ekki flokkast undir reglubundna vöktun heldur tengjast rannsóknaverkefnum í geislavistfrćđi, s.s. villtur gróđur, jarđvegur, vatnafiskur, sjávarspendýr, grćnmeti og fleira. Niđurstöđur mćlinga sýna ađ styrkur sesíns er almennt lágur í íslenskri náttúru og í matvćlum. Í andrúmslofti er styrkur sesíns < 0,1 μBq/m3 og í úrkomu < 1 mBq/l. Styrkur sesíns í mjólkurafurđum hefur fariđ jafnt og ţétt lćkkandi á tímabilinu. Í mjólk hefur styrkur sesíns falliđ úr 5,7 í 0,6 Bq/l og í mjókurdufti úr 50 í 7 Bq/kg. Styrkur sesíns í lambakjöti er mjög breytilegur og spannar 1-155 Bq/kg. Í sjó er styrkur sesíns talsvert mismunandi á milli sjógerđa, frá 1,5-10,5 Bq/m3. Minnstur er styrkurinn í Atlantssjó fyrir sunnan land en hćstur í pólsjó fyrir norđanvestan land. Í ţangi mćlist styrkur sesíns á bilinu 0,1-0,8 Bq/kg og í fiski á bilinu 0,05-0,50 Bq/kg. Styrkur sesíns í íslenskum matvćlumer í öllum tilvikum vel innan 1000 Bq/kg, sem eru ţau mörk sem miđađ er viđ í milliríkjaviđskiptum međ matvćli.
Skýrsluna. „Geislavirk efni í umhverfi og matvćlum 1989-2003“ má nálgast hér í heild sinni á PDF formi.