Fréttir
Norrænt samstarf um geislamælifræði
Á vinnufundi um geislamælifræði sem haldinn var í Reykjavík 27. – 28. október 2005 var unnið að gerð skýrslu um stöðu geislamælifræðinnar á Norðurlöndum og skipulagt námskeið fyrir starfsmenn norrænna geislavarnastofnana í maí á næsta ári.
Með samstarfi á þessu sviði er unnið að því að bæta og tryggja mælingar á geislun sem sjúklingar fá við meðferð gegn krabbameinum.
Mynd. Þátttakendur í fundi norræna vinnuhópsins. Garðari Mýrdal eðlisfræðingi frá Landspítalanum var sérstaklega boðið til fundarins.