Fréttir

Geislavirkar lindir finnast í brotajárni í Noregi

23.1.2006

Dæmi um að ábyrgir aðilar virði ekki reglur um förgun geislavirkra linda.

Í nóvember á síðasta ári fundust sterkar geislavirkar lindir í brotajárni sem tekið hafði verið við til bræðslu hjá norska fyrirtækinu Fundia Armeringsstål.

Slíkt er litið mjög alvarlegum augum þar sem þessar lindir geta verið skaðlegar fólki sem er nálægt þeim eða tekur á þeim. Efnahagslegt tjón getur orðið mjög mikið ef slíkar lindir eru bræddar með brotamálmi þar sem mikið magn af málmi verður ósöluhæfur og verksmiðjan sjálf jafnvel óstarfhæf meðan hreinsun fer fram.

Í fyrstu var almennt talið að lindirnar hefðu komið með innfluttum brotamálmi en síðar voru lindirnar raktar til norska hersins sem upphaflega hafði keypt þær. Norski herinn gat ekki gert grein fyrir því hvað hefði farið úrskeiðis við förgun lindanna.

Atvikið var tilkynnt til lögreglunnar og norsku geislavarnirnar rannsaka þetta mál. Nánar má lesa um þetta á vefsíðu geislavarna Noregls http://www.nrpa.no/

Á Íslandi eins og í Noregi eru haldnar skrár um allar geislavirkar lindir í notkun og rík áhersla er lögð á að þeim sé fargað með því að senda þær aftur til framleiðanda þar sem ekki er til nein förgunarstöð á Íslandi. Geislavirkar lindir á Íslandi eru tiltölulega fáar og fylgst er nánar með þeim en víða annars staðar í Evrópu. Engu að síður er jafnan ástæða fyrir þá sem meðhöndla brotajárn af óvissum uppruna að vera vel á verði vegna slíkra linda og hafa samband við stofnunina í vafatilvikum. Geislavarnir ríkisins benda á danskar leiðbeiningar með myndum af dæmigerðum lindum í umferð í Danmörku og á Íslandi.