Fréttir

Álit vísindanefndar Evrópusambandsins um ljósabekki

16.2.2006

Vísindamenn fjalla um öryggi ljósabekkja

Ljósabekkir sem seldir eru á Evrópska efnahagssvćđinu ţurfa ađ uppfylla kröfur um öryggi sem settar eru fram í evrópskum stađli EN 60335-2-27. Stađallinn nćr međal annars til öryggisţátta vegna útfjólublárrar geislunar (UV- geislunar). Spćnsk stjórnvöld hafa bent á galla í stađlinum og í framhaldi af ţví var sett á fót vísindanefnd til ađ svara ýmsum spurningum varđandi áhrif útfjólublárrar geislunar í ljósabekkjum.

Ţessi nefnd hefur birt fyrstu drög ađ áliti sínu til umsagnar fyrir 6. mars 2006. Ţetta álit í endanlegri útgáfu hefur mikiđ vćgi ţví ađ ţađ verđur notađ af Evrópusambandinu til ađ setja fram kröfur til evrópsku rafstađlastofnunarinnar CENELEC viđ endurskođun stađalsins. Álitiđ er einnig áhugavert fyrir alla áhugamenn um UV- geislun ţar sem ţađ lýsir stöđu núverandi ţekkingar á ţessu sviđi.

Vísindanefndin fer yfir helstu rannsóknir á tengslum húđkrabbameins viđ notkun ljósabekkja og leggur mat á ţćr. Hún telur margt vera á huldu um ţetta samband og vill ađ reglur miđist viđ ţađ sem er vitađ, t.d. um ađ fólk međ ljósa húđgerđ sé í áhćttuhópi og ađ tímamörk í ljósabekkjum séu miđuđ viđ ţekkt viđmiđ til ađ forđast bruna hvort sem hann stafar af UVA eđa UVB geislun. Hún telur enga geislun vera örugga en reynir engu ađ síđur ađ leggja tölulegt mat á aukna dánartíđni t.d. viđ ađ nota ljósabekki 10-20 sinnum á ári.

Heildarniđurstađa nefndarinnar í ţessum drögum er ađ notkun ljósabekkja í fegrunarskyni hvort sem notuđ er UVA og/eđa UVB geislun sé líkleg til ađ auka hćttu á illkynja sortućxlum.

Einnig er ţađ niđurstađa nefndarinnar, ađ fólki í ţekktum áhćttuhópum vegna húđkrabbameins skuli ráđlagt ađ nota ekki ljósabekki. Í ţeim hópi er:

1) fólk undir 18 ára aldri

2) fólk međ húđgerđ I og II og međ freknur

3) fólk međ marga fćđingarbletti og

4) fólk sem á ćttingja sem hafa fengiđ sortućxli.

Öllum er frjálst ađ senda nefndinni umsagnir um drögin. Búast má viđ viđbrögđum úr mörgum áttum, m.a. munu Norrćnar geislavarnastofnanir senda inn sameiginlegt álit sem verđur gert opinbert.

Tenglar:

Álit vísindanefndar Evrópusambandsins um ljósabekki

Norrćnar ráđleggingar um ljósabekki, febrúar 2005

Frétt Geislavarna um stađal