Fréttir
Evrópusambandið setur mörk fyrir ljós-geislun starfsfólks
Evrópuþingið samþykkti í febrúar 2006 samkomulag að tilskipun um tilbúna ljós-geislun (artificial optical radiation). Í samkomulaginu eru settar fram lágmarkskröfur vegna heilsu starfsfólks sem vinnur með tilbúið ljós, t.d. frá leysum, útfjólubláum lömpum og vegna hitageislunar. Samkomulagið nær ekki til geislunar frá sólunni.
Þessi samþykkt Evrópuþingsins notar viðmið sem vísindamenn hjá Alþjóðaráði um ójónandi geislun hafa sett fram (ICNIRP). Á Íslandi og í Noregi hafa geislavarnir einnig stuðst við þessi viðmið þótt löndin séu ekki í Evrópusambandinu. Lagsetning Evrópusambandsins hefur oft áhrif á Íslandi og í Noregi, á þann hátt að neytendavara á Evrópska efnahagssvæðinu þarf að uppfylla öryggiskröfur sambandsins.
Í nýjustu skýrslu sinni um starfstengda geislun frá því í nóvember 2005 hafa Geislavarnir í Noregi bætt við umfjöllun um ójónandi geislun m.a. frá leysum og vegna notkunar útfjólublás ljóss. Í samantekt (á bls. 44) er sagt frá tvenns konar tilvikum þar sem Norðmenn telja að starfsmenn geti orðið fyrir meiri ljósgeislun en viðmið ICNIRP segja til um
1) Við notkun blás ljóss hjá tannlæknum til að herða fyllingar og lýsa tennur. Á nokkrum mínútum er hægt að fara yfir mörkin við slíka vinnu og notkun hlífðargleraugna er þess vegna mikilvæg.
2) Vegna útfjólublás ljóss, UVC sem m.a. er notað til að sótthreinsa vatn. Tilvikin tengjast gömlum búnaði eða nýjum búnaði þar sem varnarbúnaður hefur bilað eða verið aftengdur. (ÞS)
Tenglar:
Skýrsla Norðmanna um starfstengda geislun 2005 (pdf 1,32MB)