Fréttir
Rannsókn á geislaálagi sjúklinga í skjaldkirtilsmeđferđ
Geislavarnir ríkisins taka ţátt í Norrćnu verkefni ţar sem bornar eru saman mismunandi ađferđir á sjúkrahúsum á Norđurlöndum viđ ađ meta geislaskammta sem sjúklingar fá í skjaldkirtilsmeđferđ međ geislavirkum efnum. Fyrstu niđurstöđur úr ţessum samanburđi verđa kynntar á ráđstefnu í Kóreu í október n.k. (Rannsóknin kallast á ensku: Survey of methods for radioiodine therapy of hyperthyrodism in the Nordic countries, fyrsti höfundur Helene Jönsson).
Samkvćmt áttunda liđ fimmtu greinar laga nr. 44/2002 skulu Geislavarnir ríkisins annast rannsóknir á sviđi geislavarna. Međal mikilvćgustu rannsókna sem stofnunin stundar eru rannsóknir á geislaálagi sjúklinga. Stofnunni er sérstaklega mikilvćgt ađ stunda slíkar rannsóknir vegna ţess ađ í reglugerđum er ţess krafist ađ Geislavarnir ríksins gefi út leiđbeiningar um viđmiđunarmörk viđ helstu rannsóknir sem framkvćmdar eru á sjúkrahúsum (sbr. grein 72 í reglugerđ 640).
Stofnunin hefur lengi safnađ upplýsingum um geislaálag í myndgreiningu röntgentćkja og jafnframt tekiđ ţátt í samanburđi viđ önnur Norđurlönd á geislasálagi sjúklinga viđ ýmsar tegundir röntgerannsókna en stofnunin hefur ekki áđur tekiđ ţátt í slíkum rannsóknum ţar sem geislavirk efni ('ísótópar') valda geislaálaginu.