Fréttir
Sólgleraugu og sólarvarnaráburður um páskana
Um páskana fara margir í sín fyrstu ferðalög á árinu og dveljast margir langan tíma úti við t.d. á skíðum upp til fjalla. Geislavarnir ríkisins benda á að páskar eru óvenju seint á árinu og þess vegna er sól hærra á lofti en oft áður um páska og ástæða til að minna á notkun sólgleraugna og sólarvarnaráburðar.
Sól er aldrei hátt á lofti á Íslandi og útfjólublá geislun sólar er ekki mikil. Í skíðaferðalagi um páska eru hinsvegar nokkrir þættir sem auka geislunina og gætu valdið snjóblindu og óþarfa sólbruna hjá þeim sem ekki gæta sín. Þessir þættir eru:
1) Páskar eru óvenju seint á ferðinni þetta árið og þess vegna er sól hærra á lofti en venjulega um páska.
2) Nú er snjór yfir nær öllu landinu en sólarljós endurkastast mjög vel af snjó og geislunarstyrkur í andlit og augu getur nærri tvöfaldast vegna þess.
3) Til fjalla er útfjólublá geislun meiri en niður við sjó vegna þess að andrúmloftið dregur úr UV-geislun.
4) Ósónlagið í háloftunum sem verndar jörðina fyrir UV-geislun getur þynnst mjög mikið síðla vetrar og í byrjun vors ef það er mjög kalt í háloftunum. Þetta gerðist t.d. í febrúar og mars 2005 og er árlegur viðburður á suðurhveli jarðar.
(ÞS 2006)