Fréttir
Science of the Total Environment birtir vísindagrein frá Geislavörnum
Hið virta vísindarit, Science of the Total Environment, hefur birt grein starfsmanns Geislavarna um hvernig meta má geislavirkt úrfelli út frá úrkomugögnum. Aðferðin er síðan notuð til að meta dreifingu geislavirks úrfellis (sesín-137) á Íslandi.
Geislavirkt úrfelli dreifðist um alla jörðina í kjölfar tilrauna stórveldanna með kjarnorkuvopn kringum 1960. Bundinn var endir á slíkar tilraunir í andrúmsloftinu 1963. Eitt varasamasta efnið í þessu úrfelli er geislavirkt sesín (Cs-137), en hegðun þess í náttúrunni ræðst mjög af aðstæðum. Rannsóknir í geislavistfræði á Íslandi hafa miðað að því að auka við skilning á hegðun þessa efnis hérlendis og bæta forspárgildi líkana.
Brenda J. Howard er meðal virtustu vísindamanna á sviði geislavistfræði og hefur verið virk í rannsóknum hérlendis (sjá eldri fréttir af tilefni komu hennar hingað til lands í nóvember 2003 og í febrúar 2005 ). Hún var meðhöfundur greinar sem annar starfsmaður Geislavarna skrifaði um geislavirkt sesín í íslenskum eldfjallajarðvegi.
Bein krækja í greinina í Science of the Total Environment:
http://dx.doi.org/10.1016/j.scitotenv.2006.01.011