Fréttir

Viðbúnaður: Rauntímamælingar á geislun aðgengilegar á vef Geislavarna

21.4.2006

Styrkur (gamma)geislunar er vaktaður á 4 mælistöðvum á Íslandi og niðurstöður mælinganna hafa verið gerðar aðgengilegar á vefsetri Geislavarna ríkisins. Vöktunin er hluti viðbúnaðar gegn geislavá á Íslandi. Niðurstöður mælinganna sýna náttúrulega bakgrunnsgeislun. Hún er breytileg bæði eftir stað og tíma, t.d. getur úrkoma skolað geislavirkum efnum úr lofthjúpi til jarðar. Íslenskt berg er mjög rýrt af geislavirkum efnum, það er þó mismunandi eftir svæðum hversu lítill styrkurinn er. Stöðvarnar myndu sýna marktæka aukningu ef mökkur geislavirkra efna bærist til Íslands frá kjarnorkuslysi erlendis.

Þessar mælingar eru samstarfsverkefni Geislavarna ríkisins og Veðurstofu Íslands. Geislamælar hafa verið settir upp á 4 sjálfvirkum mælistöðvum Veðurstofunnar (Reykjavík, Bolungarvík, Raufarhöfn og Akurnesi). Línurit yfir styrk geislunarinnar eru birt á vefjum Geislavarna ríkisins (www.geislavarnir.is) og Veðurstofu Íslands (www.vedur.is), auk þess sem gögnin eru gerð aðgengileg erlendum samstarfsaðilum.
Línuritin sýna styrk geislunar undanfarna viku. Með því að smella á heiti mælistöðvar má fá nánari upplýsingar um mælingar á hverjum stað.

Sjá má línuritin með því að fara á heimasíðu Geislavarna ríkisins (www.geislavarnir.is) og smella á hnappinn lengst til hægri: Gammastöðvar.

Einnig má nota tengil beint á vefsíðuna:
http://www.gr.is/gammastodvar/