Fréttir
Geislavarnir í læknisfræði - Tvö nýleg rit frá IAEA
Leiðbeiningarrit um kjarnlækningar
-ísótóparannsóknir og lækningar með geislavirkum efnum
Nuclear Medicine Resources Manual
Þetta rit kom út í febrúar á þessu ári og inniheldur ítarlega umfjöllun um flesta þætti sem snúa að notkun geislavirkra efna í læknisfræði, s.s. menntun og þjálfun starfsmanna, nauðsynlega aðstöðu og tækjabúnað, mikilvægi gæðakerfis, geislalyffræði(radiopharmacy) og leiðbeiningar um klínískan rekstur. Ritið er skrifað með almenna notkun í huga og inniheldur því leiðbeiningar sem ættu að koma að gagni fyrir daglegan rekstur hjá starfandi deildum. Ritið er einnig áhugavert fyrir þá sem koma að uppbyggingu nýrra deilda. Þetta leiðbeiningarrit ætti að vera áhugavert fyrir starfsmenn deilda þar sem unnið er með geislavirk efni til sjúkdómsgreiningar eða lækninga.
Geislavarnir vegna notkunar geislavirkra efna við æðalækningar
Radiological Protection Issues in Endovascular Use of Radiation Sources. IAEA TECDOC Series No. 1488
Í æðalækningum erlendis eru víða notaðar ákveðnar tegundir af geislalindum (geislavirk efni í lokuðum hylkjum) við eftirmeðferð á æðaþeli eftir æðaútvíkkun og æðaaðgerðir. Að slíkum aðgerðum koma margir starfshópar heilbrigðisstarfsmanna, svo sem hjartalæknar, æðaskurðlæknar, krabbameinslæknar, geislafræðingar og eðlisfræðingar. Í ritinu er komið á framfæri upplýsingum um atvik og óhöpp sem höfðu í för með sér aukna geislun á starfsfólk og sjúklinga. Uppsetning ritsins er einföld og ekki farið djúpt í mælifræði og gæðakerfi. Ritið er áhugavert fyrir starfsmenn deilda hérlendis þar sem umræða um hugsanlega notkun þessarar tækni hérlendis fer fram.