Fréttir

Ísland og alþjóðlegir samningar um geislavirkan úrgang

24.5.2006

Ísland fullgilti þann 27. janúar 2006 samning um örugga meðferð notaðs eldsneytis og um örugga meðferð geislavirks úrgangs. Samningurinn tók gildi gagnvart Íslandi þann 27. apríl. Dagana 15. – 24. maí var haldinn fundur hjá Alþjóða­kjarn­orkumála­stofnuninni (IAEA), þar sem hvert aðildarríki kynnti, með skýrslu og framsögu í umræðum, hvernig ákvæði samningsins hafa verið uppfyllt. Kynning Íslands var föstudaginn 19. mars og var henni vel tekið.  Var hún talin til fyrirmyndar varðandi kynningu ríkis sem ekki nýtir kjarnorku, en hefur þó gagn af alþjóðlegri samvinnu á þessu sviði.

Í samningnum eru ákvæði um hvernig tryggja skuli að meðferð notaðs eldsneytis frá kjarnorkuiðnaði sé örugg, sem og meðferð á öðrum geislavirkum úrgangi. Flest ákvæðin snúa einkum að ríkjum sem nýta kjarnorku, en önnur eru almennari. Markmiðið er að tryggja að öll meðhöndlun geislavirkra efna, frá tilurð þeirra til endanlegrar förgunar sé örugg og að endanlegir förgunarstaðir uppfylli öryggis­kröfur, jafnvel um aldir ef þess þarf.

Á annað hundrað ríki eiga hlut að IAEA, en einungis á fimmta tug ríkja eiga aðild að samningnum um örugga meðferð notaðs eldsneytis og um örugga meðferð geislavirks úrgangs. Á fundinum var því rætt með hvaða hætti mætti gera það eftirsóknarverðara og auðveldara fyrir ríki án kjarnorkuvera að gangast undir ákvæði samningsins.  Kynning Íslands vakti athygli, m.a. vegna þess hvernig kynnt var það gagn sem smáríki geta haft af alþjóðlegri samvinnu á þessu sviði.  Rætt var um að nota mætti þetta sem fyrirmynd fyrir önnur ríki sem ekki hafa enn undirritað samninginn. 

Skýrsla Íslands var tekin saman fyrir utanríkisráðuneytið af Sigurði M. Magnússyni, forstjóra Geislavarna ríkisins, og Sigurði Emil Pálssyni, sviðsstjóra Vöktunar- og viðbúnaðarsviðs stofnunarinnar.  Fulltrúar Íslands á fundinum voru Sveinn Björnsson, sendiherra og Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir, sendiráðunautur, auk Sigurðar Emils, sem kynnti skýrsluna, stefnu Íslands í þessum málum og það gagn sem Ísland hefur haft af alþjóðlegri samvinnu á þessu sviði.

 

Vefsíða IAEA tileinkuð samningnum og framkvæmd hans:
http://www-ns.iaea.org/conventions/waste-jointconvention.htm

Texti samnings (á ensku):
http://www.iaea.org/Publications/Documents/Infcircs/1997/infcirc546.pdf