Fréttir
Grunnráđleggingar Alţjóđa geislavarnaráđsins (ICRP) – ný drög
Endurskođuđ drög ađ nýjum grunnráđleggingum Alţjóđa geislavarnaráđsins, ICRP, birt til skođunar og umsagnar.
Í liđinni viku birtist á vefsíđu ICRP, http://www.icrp.org/, endurskođuđ drög ađ nýjum grunnráđleggingum ráđsins sem hafa veriđ í smíđum undanfarin ár. Ţćr grunnráđleggingar ráđsins sem nú er stuđst viđ komu út í riti ICRP nr. 60 áriđ 1990.
Framkvćmd geislavarna í flestum ríkjum heimsins byggir á leiđbeiningum ICRP.
Breyttar áherslur sem ICRP bođađi í drögum sem birt voru í júní 2004 vöktu hörđ viđbröđ víđa og urđu tilefni mikillar umfjöllunar á alţjóđlegum vettvangi međal annars hjá Kjarnorkumálastofnun OECD í París sem og hjá Alţjóđa kjarnorkumálastofnuninni í Vínarborg. Mikill fjöldi umsagna ţar sem gerđar voru alvarlegar athugasemdir viđ fyrirhugađar breyttar áherslur bárust á heimasíđu ICRP.
Nú hefur ICRP birt á vefsíđu sinni endurskođuđ drög ađ nýjum grunnráđleggingum ráđsins. Í nýju drögunum hefur veriđ tekiđ tillit til margra ţeirra athugasemda sem gerđar voru viđ fyrri drög. Frestur til ađ skila inn athugasemdum viđ nýju drögin er til 15. september. Stjórnarnefnd ICRP, kemur saman í byrjun nóvember og er vonast til ađ ţá verđi hćgt ađ samţykkja útgáfu nýrra grunnráđlegginga ráđsins. Hvort ţađ gengur eftir rćđst ađ miklu leiti af ţeim athugasemdum og umsögnum sem berast á heimasíđuna fyrir 15. september. Nánar verđur fjallađ um ţessi drög á ţessum vettvangi síđar.