Fréttir

Geislavarnir fá greiđan ađgang ađ gögnum frá yfir 4000 erlendum geislamćlistöđvum.

4.7.2006

Geislavörnum ríkisins var bođiđ ađ kynna skipulag á rekstri sjálfvirkra geislamćlistöđva hérlendis (gammastöđva) á fundi á vegum Evrópusambandsins í byrjun júní og samhliđa ţví fékkst greiđur ađgangur ađ gögnum frá yfir 4000 stöđvum erlendis.

Fundurinn markar nánara samstarf viđ Evrópusambandiđ á ţessu sviđi (EURDEP). Geislavarnir láta í té gögn frá íslenskum mćlistöđvum og fá á móti ađgang ađ gögnum frá erlendum mćlistöđvum. Geislavarnir eru einnig orđna virkur ţátttakandi í stefnumótun gagnaskipta á sviđi geislaviđbúnađar. Evrópsku gögnin má sjá á vefsíđunni: http://eurdep.jrc.it.

Á ţessu vefsetri er m.a. Evrópukort ţar sem mćligildi einstakra stöđva eru táknuđ. Mörg lönd leyfa ekki birtingu nýrra gagna, ţannig ađ ţađ getur ţurft ađ skođa gögn aftur í tímann til ađ sjá allar stöđvarnar. Geislavarnir ríkisins hafa hinsvegar fengiđ rauntímaađgang ađ öllum fyrirliggjandi gögnum. Ţessi ađgangur er mikilvćgur til ađ fá fljótt mat á dreifingu geislavirkra efna ef geislaslys verđur.

Íslensku gögnin má sjá á vefsíđunni: http://geislavarnir.is/gammastodvar/ , og ţau hafa einnig veriđ kynnt áđur í fréttum Geislavarna.