Fréttir
Bilun í sænsku kjarnorkuveri leiðir til víðtækrar rannsóknar á öryggi rafkerfa kjarnorkuvera
Þann 25. júlí leiddi rafmagnstruflun til neyðarstöðvunar kjarnaofns nr. 1 í Forsmark kjarnorkuverinu í Svíþjóð. Það voru eðlileg viðbrögð við þessari truflun. Hins vegar virðist truflunin hafa haft víðtækari áhrif, m.a. á rafkerfi versins sjálfs, því tveir af fjórum neyðardíselrafölum fóru ekki í gang. Þetta leiddi m.a. til þess að kæling kjarnaofnsins varð ófullnægjandi á tímabili. Önnur öryggiskerfi unnu eðlilega og það var ekki hætta á slysi (t.d. bráðnun vegna ofhitnunar).
Þótt það hafi ekki verið hætt við alvarlegu slysi, þá eru keðjuverkandi áhrif þessarar rafmagnstruflunar á rafkerfi versins sjálfs ekki hluti af þeim bilunum sem hefur verið reiknað með að gætu orðið. Í kjarnorkuiðnaði er litið mjög alvarlegum augum á allar óútskýrðar bilanir sem geta haft áhrif á öryggi rekstursins. Í kjölfar slyssins í Forsmark var tveimur kjarnaofnum í Oskarshamn einnig lokað, en þeir höfðu rafbúnað af svipaðri gerð og sá sem bilaði. Aðrir ofnar (í þessum kjarnorkuverum og öðrum) hafa aðra gerð búnaðar og ekki þykir nauðsynlegt að loka þeim.
Sænska kjarnorkueftirlitið hefur miðlað upplýsingum um slysið til Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) og til ýmissa alþjóðlegra stofnana, auk samstarfsstofnana, þ.á.m. til Geislavarna ríkisins. Geislavarnir munu halda áfram að fylgjast með þróun rannsóknarinnar og niðurstöðum hennar.
Nánari upplýsingar má fá á vef sænska kjarnorkueftirlitsins (SKI):
www.ski.se