Fréttir
Norrænt samstarf um geislavarnir í læknisfræðilegri myndgreiningu
Norrænar geislavarnastofnanir hafa með sér öflugt samstarf á mörgum sviðum. Eitt þeirra er geislavarnir vegna notkunar jónandi geislunar í læknisfræðilegri myndgreiningu. Norrænn vinnuhópur um það efni hélt að þessu sinni, árlegan fund í Reykjavík í síðustu viku, dagana 17. - 18. ágúst. Á fundinum voru sérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum og báru menn saman bækur sínar um lagaramma landanna, framkvæmd eftirlits og rannsóknir á þessu sviði. Einnig var unnið að sameiginlegum verkefnum, m.a. um mælingar á geislaálagi við tölvusneiðmyndatökur á börnum, í þeim tilgangi að setja sameiginleg viðmiðunargildi. Slíkar röntgenrannsóknir á börnum eru ekki nógu margar í hverju landi til að auðvelt sé að ná fram tölfræðilega marktækum niðurstöðum.
Á fundinum í Reykjavík voru einnig ræddar hugmyndir um fjölda samstarfsverkefna sem gætu skilað niðurstöðum eftir fjögur ár á evrópskri ráðstefnu um geislavarnir í Helsinki sem Norðurlöndin standa sameiginlega að árið 2010 (IRPA). Meðal verkefna sem voru til umræðu voru kröfur um myndgæði vegna stafræns myndgerðarbúnaðar, mælingar og aðferðafræði við áætlun geislaskammts á hendur starfsfólks sem vinnur við tilteknar röntgenrannsóknir og fleira.