Fréttir
Bilun í tilraunakjarnakljúf í Noregi – engin geislavirkni slapp til umhverfis
Tilkynning barst í morgun frá Geislavarnastofnun norska ríkisins (NRPA) um að bilun hafi orðið í kjarnakljúf í Kjeller í Noregi. Bilunin virðist hafa leitt til þess að geislavirk efni hafi sloppið út úr hringrás kjarnakljúfsins, en þau sluppu ekki út úr byggingunni enda hún hönnuð til að geta fangað töluverðan leka frá kljúfnum. Íbúar í grenndinni voru því ekki í hættu. Þetta atvik er þó viss álitshnekkir fyrir rannsóknastofnunina sem rekur kjarnakljúfinn og NRPA hefur gert kröfu um það að kljúfurinn verði ekki ræstur að nýju fyrr en komist hafi verið fyrir rætur þessarar bilunar og viðeigandi ráðstafnir gerðar.
Sjá nánar fréttatilkynningar á vefsetri Geislavarnastofnunar norska ríkisins
Sjá einnig fréttatilkynning á vefsíðu norsku orkurannsóknarstofnunarinnar, IFE:
Tilraunakjarnakljúfurinn sem um ræðir er nefndur JEEP II. Eldsneyti hans er um 250 kg af úrani og þungt vatn er notað sem hemilefni (e. moderator). Afl kljúfsins er um 2 MW og hann hefur undanfarið aðallega verið notaður við rannsóknir í efnisfræði (innan eðlisfræði) og efnafræði