Fréttir
Framfarir í ljóstækni
Þann 8. september síðastliðinn, veittu Finnar 1 milljón evra í verðlaun til japanska prófessorsins Shuji Nakamura fyrir uppgötvanir í ljóstækni, þar á meðal fyrir að hafa fundið upp bláu ljósdíóðuna. Einn af starfsmönnum Geislavarna ríkisins var viðstaddur erindi sem Nakamura hélt daginn eftir til að lýsa uppgötvunum sínum og afleiðingum þeirra. Umfjöllun BBC um Nakamura og finnsku verðlaunin er á vefslóðinni: http://news.bbc.co.uk/1/hi/technology/5328446.stm
Hin hefðbundna ljósapera framleiðir ljós með því að hita upp málminn þungstein með rafmagni sem við það glóir. Aðeins um 1-4% af raforkunni nýtist til að framleiða sýnilegt ljós.
Ljósdíóður endast miklu lengur en ljósaperur (jafnvel meira en 100 sinnum lengur) og með þeim má ná 25-52% orkunýtingu en allt að 90% eru fræðilega möguleg. Díóðurnar höfðu lengi þann galla að vera alltaf rauðar og þær gátu ekki framleitt hvítt ljós. Þetta hefur nú breyst og átti Nakamura þátt í því.
Afleiðingarnar eru margvíslegar.
Nakamura nefndi að ef allir Bandaríkjamenn notuðu hagkvæmustu lýsingu í stað eldri ljósapera, mætti spara orku og loka umtalsverðum fjölda raforkuvera sem brenndu kolum. Þetta gæti haft þýðingu við að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Nærri þriðjungur jarðarbúa notar ennþá eldivið og olíulampa til lýsingar. Ljósdíóður nota svo litla orku að þær mætti nota til lýsingar í Afríku og víðar þar sem engar raflagnir eru. Díóðurnar gætu notað rafmagn úr sólarrafhlöðum. Þetta skiptir miklu máli fyrir menntun ungs fólks sem þarf að nota kvöldin til heimalærdóms. Nakamura taldi ljósdíóðurnar vera það ódýrar að það borgaði sig á u.þ.b. hálfu ári að kaupa þær í stað olíulampa (kerosene-lampa) sem víða eru notaðir.
Ljósdíóður eru án glers og þungmálma. Nakamura sagði að þetta myndi verða til þess að bílaframleiðendur myndu hætta að nota aðra ljósgjafa í bíla sína því að núverandi ljós væru með hættulegum þungmálmum (þar á meðal er kvikasilfur). Díóðuljós eru þegar algeng í rauðum bremsuljósum bifreiða en þau verða einnig notuð í framljósum.
Hvítar ljósdíóður eru nú þegar notaðar í farsímum og marglitar ljósdíóður eru notaðar í flatskjái. Ný umferðaljós eru víða með ljósdíóðum og spara bæði viðhald og rafmagn. Í Japan eru ljósdíóður notaðar í gróðurhúsum til að rækta ‘Wasabi’.
Með díóðum má framleiða ódýra leysa. Leysibendar voru áður alltaf rauðir en nú má fá þá í öllum litum. Blár díóðuleysir sem Nakamura átti þátt í að þróa verður notaður í nýja kynslóð DVD geislaspilara sem mun margfalda geymslugetu geisladiska (Blue-Ray-DVD, HD-DVD mun geta geymt 27 Giga Byte).
Vegna bættrar orkunýtingar geta díóðuleysar sem ganga fyrir rafhlöðum orðið mjög öflugir. Geislavarnastofnanir hafa haft vaxandi áhyggjur af gáleysilslegri notkun ódýrra og öflugra leysibenda sem geta valdið heilsutjóni (aðallega augnskaða) á skammri stundu.
Hefðbundnir röntgenlampar sem notaðir eru til röntgenmyndatöku og í geislameðferð minna um margt á hefðbundnar ljósaperur. Orkunýting þeirra er lítil og búnaður er fyrirferðamikill og dýr. Hugsanlega á þetta eftir að breytast.
Komið hafa fram hugmyndir um að nota díóðuleysa til að framleiða jónir í geislameðferð sem gætu gert hana bæði áhrifaríkari og ódýrari.
Nú þegar eru framleiddar ljósdíóður sem framleiða útfjólublátt ljós sem notaðar eru til að sótthreinsa vatn.