Fréttir
Nýtt vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga
Árið 2000 stóð IAEA fyrir alþjóðlegri ráðstefnu í Malaga á Spáni, um geislavarnir sjúklinga vegna notkunar geislunar í læknisfræði. Ráðstefnan þótti takast mjög vel og voru þátttakendur um 1000. Á ráðstefnunni var m.a. ákveðið að leggja til við yfirstjórn IAEA að átak yrði gert á þessu sviði. Tillaga þess efnis var síðan lögð fyrir aðalfund IAEA árið 2002, og voru fulltrúar Íslands í farabroddi þeirra sem studdu tillöguna en það varð til þess að hún var samþykkt. Tillagan gerði ráð fyrir því að þessu starfi yrði stýrt af ráðgjafanefnd sem í sætu fulltrúar frá fjölda alþjóðlegra stofnana og fagsamtökum. Nefndin hélt sinn fyrsta fund í byrjun árs 2004. Þar lagði IAEA fram starfsáætlun vegna þessa verkefnis: International Action Plan for the Radiological Protection of Patients, sem unnin var í samastarfi við þessar stofnanir Sameinuðu Þjóðanna: Pan American Health Organization (PAHO), World Health Organization (WHO), United Nations Scientific Committee on the Effects of Atomic Radiation (UNSCEAR). Önnur samtök eða stofnanir sem koma að starfinu eru:
- European Commission,
- International Commission on Radiation Units and Measurements,
- International Commission on Radiological Protection,
- International Electrotechnical Commission,
- International Organization for Medical Physics
- International Organization for Standardization,
- International Radiation Protection Association,
- International Society of Radiation Oncology
- International Society of Radiographers and Radiological Technologists
- International Society of Radiology
- World Federation of Nuclear Medicine and Biology.
Einnig var boðið sérfræðingum frá geislavarnastofnunum Kanada og Svíþjóðar. Á öðrum fundi nefndarinnar í byrjun árs 2006 var sérfræðingi frá Íslandi einnig boðið að taka þátt í starfsemi nefndarinnar.
Vefsetur http://rpop.iaea.org/RPoP/RPoP/Content/index.htm
Vefsetrið er ætluð fagfólki sem starfar með jónandi geislun í læknisfræði, heilbrigðisyfirvöldum í einstökum löndum og sjúklingum. Vefurinn á að vera upplýsingaveita það sem aðgengilegar verða á einum stað eins víðtækar upplýsingar og mögulegt er um geislun og geislavarnir.
Vefurinn byggist á því að svara ítarlega algengustu spurningum (FAQ) sem upp koma innan einstakra sviða, og er efnisflokkun í takt við notkunarsvið jónandi geislunar, svo sem læknisfræðileg myndgreining, geislameðferð, ísótóparannsóknir, aðgerðarrannsóknir og önnur notkun. Einnig er efninu skipt niður eftir algengustu starfsstéttum, eins og röntgenlæknar, geislafræðingar, krabbameinslæknar, hjartalæknar, tilvísandi læknar, o.s.frv..
Á vinstri valrönd vefsíðunnar eru flýtileiðir til einstaka svæða vefsins, svo sem “training” en þar er að finna mikið af kennsluefni sem auðvelt er að nálgast og heimilt að nota við kennslu og fræðslu. Þar er einnig flýtileið fyrir geislavarnir barnshafandi kvenna. Væntanlegt er efni þar sem sérstaklega er fjallað um geislavarnir barna.
Sá hluti vefsins sem ætlaður er sjúklingum er enn í vinnslu og einnig vantar ennþá upplýsingar í nokkrum undirflokkum. Þó að vefurinn sé ekki fullgerður er nú þegar komið þar inn mikið af upplýsingum sem eru mikilvægar fyrir þá sem starfa á þessu sviði.