Fréttir

Geislavarnir veita alþjóðastofnun tæknilega aðstoð

24.10.2006

Geislavarnir ríkisins hafa áralanga reynslu af rekstri sjálfvirkrar mælistöðvar fyrir gammageislandi svifagnir í andrúmslofti. Nýverið annaðist starfsmaður Geislavarna endurbætur á slíkri stöð á Svalbarða og þjálfaði jafnframt notendur hennar að beiðni CTBTO.

Geislavarnir hafa frá árinu 1999 annast uppsetningu og rekstur mælistöðvar fyrir geislavirkar svifagnir í andrúmslofti í umboði Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organisation (CTBTO). CTBTO er alþjóðleg stofnun sem hefur það hlutverk að koma á alþjóðasáttmála um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn. Til að fylgjast með hugsanlegum brotum á sáttmálanum er þessi árin verið að byggja upp hnattrænt net mælistöðva sem á að geta leitt í ljós tilraunasprengingar. Stöð sú sem Geislavarnir reka og er staðsett á Rjúpnahæð við Reykjavík er ein sú fyrsta í heiminum af sinni gerð en hún er m.a. búin sjálfvirkum loftsafnara og afar næmum gammarófsmæli sem getur þekkt og magngreint gammageislandi efni í andrúmslofti af nákvæmni.

Geislavarnir hafa annast prófun á tækjabúnaðinum og komið að vinnu við þróun og útfærslu endurbóta. Í kjölfar þessa starfs fór CTBTO þess nýverið á leit við Geislavarnir að sérfræðingur frá stofnuninni annaðist endurbætur á sambærilegri stöð sem staðsett er á Platåberget á Spitsbergen, stærstu eyju Svalbarða, og sinnti þjálfun starfsfólks. Kjartan Guðnason, starfsmaður Geislavarna dvaldi vikutíma á Svalbarða við þessi verkefni. Tókust endurbætur með ágætum og 10 manna hópur fékk þjálfun í reglubundnum rekstri stöðvarinnar, sem skilar nú gögnum á ný eftir langt hlé.