Fréttir

Styrkir fyrir unga vísindamenn

3.11.2006

Í frétt Geislavarna ţann 25.9 var sagt frá ráđstefnu á vegum NKS fyrir unga vísindamenn í geislaeđlisfrćđi, geislaefnafrćđi, geislavistfrćđi, geislavörnum og tengdum greinum. Ráđstefnan er haldin í Helsinki 14.-15. desember. Ferđastyrkir eru í bođi fyrir ţá sem eru reiđubúnir ađ kynna starf sitt og rannsóknir. Umsóknarfrestur hefur nú veriđ framlengdur til mánudagsins 20. nóvember. Ráđstefnan er dýrmćtt tćkifćri til ađ komast í nánari tengsl viđ norrćna starfsfélaga á ţessum sviđum.

Norrćnar kjarnöryggisrannsóknir (NKS) eru samtök sem hafa starfađ međ einum eđa öđrum hćtti í áratugi. Ţau hafa stutt norrćnt samstarf og rannsóknaverkefni á sviđi kjarnöryggistćkni, geislavistfrćđi, viđbúnađar og skyldra greina. Ţótt Norđurlönd hafi í auknum mćli tekiđ virkan ţátt í verkefnum Evrópusambandsins, ţá skiptir hiđ nána og óformlega samstarf innan NKS enn miklu máli, ađ sumu leyti jafnvel enn meira en fyrr. Lykilatriđi í starfi NKS hefur veriđ ađ hlúa ađ starfsumhverfi ungra vísindamanna á ţessu sviđi, hjálpa ţeim viđ ađ efla tengsl sín í milli og stuđla ađ hvetjandi starfsumhverfi. Stjórn NKS ákvađ ţví ađ styrkja umsókn hóps af ungu fólki, sem hefur tekiđ ađ sér ađ halda ráđstefnu í Helsinki, Finnlandi, 14.-15. desember 2006. Ţar gefst ungu fólki í geislaeđlifrćđi, geislaefnafrćđi, geislavistfrćđi, geislavörnum og skyldum greinum, tćkifćri til ađ kynna starf sitt og rannsóknir. Jafnframt verđur kynnt almennt hvađ hefur veriđ ađ gerast í ţessum greinum og norrćn samvinna innan NKS á ţessu sviđi.
Ţessum greinum er lítiđ sinnt á Íslandi (a.m.k. hvađ kennslu varđar), en ţeim mun dýrmćtara getur ţađ veriđ ungum vísindamönnum á ofangreindum sviđum ađ komast í nánari tengsl viđ norrćna starfsfélaga, ţá sem eru ađ hefja feril sinn og hina sem lengra eru komnir.
Nánari upplýsingar um ráđstefnuna má fá á vefsíđu NKS helgađri ráđstefnunni (http://www.nks.org)


Senda ţarf skráningu og útdrátt erindis/veggspjalds eigi síđar en 20. nóvember (framlengdur frestur) til ađalskipuleggjanda ráđstefnunnar, Elisabeth Strĺlberg, elisas@ife.no. Ţađ er ađ sjálfsögđu hćgt ađ taka ţátt í ráđstefnunni án ţess ađ halda erindi og leggja fram útdrátt (ţá ber ađ senda inn ţátttökutilkynningu og hafa eyđu ţar sem titill erindis á ađ vera). Ferđastyrkir eru hins vegar einungis veittir ţeim sem hafa sent inn útdrátt vegna erindis/veggspjalds.


Sigurđur Emil Pálsson, sep@gr.is, rannsóknastjóri Geislavarna ríkisins, getur einnig veitt nánari upplýsingar, en hann hefur haft yfirumsjón međ verkefnum NKS á sviđi geislavistfrćđi í rúman áratug og á sviđi geislavistfrćđi og viđbúnađar (NKS-B) síđast liđin 4 ár.

Almenn vefsíđa NKS http://www.nks.org/

Sjá einnig fyrri fréttir Geislavarna tengdar starfi NKS:

26.7.2006: Norrćnt samstarf á sviđi geislavistfrćđi og viđbúnađar gegn geislavá undir stjórn rannsóknastjóra Geislavarna ríkisins

10.3.2006 : Ţátttaka Geislavarna ríkisins í norrćnu verkefni um áhrif losunar geislavirkra efna í holrćsakerfi borga

24.11.2005 : Forstjóri Geislavarna ríkisins verđur nćsti stjórnarformađur NKS
17.11.2005 : Norrćn ráđstefna um geislavistfrćđi og mćlitćkni í Tartu í Eistlandi.
25.4.2005 : Íslenskar niđurstöđur kynntar á norrćnum fundi vinnuhóps um geislavistfrćđi