Fréttir
Eldur slökktur í sænsku kjarnorkuveri
Eldurinn kom upp í spennubreyti sem tengist kjarnaofni 3 í verinu. Skv. upplýsingum sem Geislavarnir hafa fengið frá sænska kjarnorkueftirlitinu sáu sjálfvirk öryggiskerfi versins til þess að slökkt var á kjarnaofninum eins og til er ætlast. Slökkvilið kjarnorkuversins var komið á staðinn innan nokkurra mínútna og barst síðar liðsauki til öryggis. Fulltrúar sænska kjarnorkueftirlitsins eru á staðnum og er rannsókn hafin á orsökum og afleiðingum óhappsins.
Nánari upplýsingar má fá á vef sænska kjarnorkueftirlitsins (SKI), www.ski.se og vef kjarnorkuversins, www.ringhals.se