Fréttir

Of mikil geislun viđ geislameđferđ. Vefsetur IAEA

23.11.2006

Skýrslur um ástćđur of mikillar geislunar á sjúklinga viđ geislameđferđ í Frakklandi og Bretlandi á ţessu ári hafa veriđ birtar á vefsetri IAEA. Í Frakklandi var helsta ástćđa ofgeislunar rakin til lélegrar ţjálfunar starfsmanna á viđkomandi búnađi og til galla í hugbúnađi. Í Skotlandi var fyrst og fremst um mannleg mistök ađ rćđa sem rakin eru til ófullnćgjandi menntunar starfsmanns og ţess ađ gćđakerfi viđkomandi stofnunar hafi ekki veriđ nćgilega gott.

Í febrúar á ţessu ári var birt frétt í blađinu Guardian um ranga geislameđferđ hjá ungri stúlku í Glasgow í Skotlandi. Í ljós kom ađ hún fékk mun meiri geislun en áćtlađ hafđi veriđ, eđa allt ađ 58% meira í 19 skipti. Ţegar ţessi misstök komu í ljós var ţegar skipuđ rannsóknarnefnd á vegum Skoskra geislavarnayfirvalda, sem nýlega hafa skilađ skýrslu. Samkvćmt skýrslunni eru helstu ástćđur fyrir ţessum mistökum ţćr ađ starfsmađur sem vann viđ skipulagningu međferđar var ekki međ fullnćgjandi menntun og reynslu til ţess starfa. Einnig var ţađ talin samverkandi ástćđa ađ starfslýsingar og ađferđalýsingar gćđakerfisins voru úreltar og ekki í samrćmi viđ raunveruleikann.

Skýrsla á vefsetri IAEA

Fréttavefur Guardian (www.guardian.co.uk)
Upphafleg frétt í Guardian 9. febrúar 2006
Sagt frá láti stúlkunnar í október 2006
Frekari umfjöllun í nóvember 2006


Í júlí á ţessu ári var tilkynnt til ASN (Geislavarnastofnun Frakklands) ađ 23 sjúklingar sem fengu geislameđferđ vegna krabbameins í blöđruhálskirtli á tímabilinu maí 2004 til maí 2005, hefđu fengiđ meiri geislun en gert var ráđ fyrir í međferđinni (7% til 34%). Ástćđur ţessa óhapps eru raktar til tveggja samverkandi ţátta, ţ.e. ónćgrar ţjálfunar starfsmanna og galla í hugbúnađi geislaskipu-lagningarkerfisins sem var í notkun. Skýrsla stofnunarinnar er á vefsíđu ASN (ţví miđur eingöngu á frönsku, enn sem komiđ er).

Útdráttur úr skýrslu á vefsetri IAEA

Mikiđ verk er unniđ innan IAEA til ađ tryggja öryggi og nákvćmni geislameđferđar um allan heim og eitt mikilvćgasta verkfćriđ í ţeirri vinnu er miđlun upplýsinga um óhöpp, slys og mistök viđ geislameđferđ, bćđi skipulagningu og framkvćmd međferđar. Međ ţessari upplýsingamiđlun er leitast viđ ađ koma í veg fyrir ađ svipuđ óhöpp geti endurtekiđ sig.

 

Sjá nánar vefsíđu IAEA

 

 

23. nóvember 2006

Guđlaugur Einarsson

Sviđsstjóri eftirlitssviđs