Fréttir
Pólon-210 notað sem morðvopn?
Pólon-210 (Po-210) er geislavirkt efni sem finnst í náttúrunni. Það gefur frá sér alfageisla, en þeir eru mjög skammdrægir. Þeir komast einungis 2-3 cm í lofti og þeir komast ekki í gegnum hlífðarlag húðarinnar (þeir komast t.d. ekki heldur í gegnum pappírsörk). Þeir hafa hins vegar mun meiri áhrif en aðrar tegundir geislunar á þeirri stuttu vegalengd sem þeir komast. Alfageislandi efni eru því hættulaus á meðan þau eru utan líkama, en í eðli sínu varasamari en önnur geislavirk efni ef þau komast inn í hann. Geislun í litlu magni eykur t.d. áhættu á að fá krabbamein síðar á ævinni. Sé geislunin mjög mikil, þá veldur mikill frumudauði líffræðilegum áhrifum sem geta reynst banvæn. Séu reykingar notaðar til samanburðar, þá má segja að reykingar í smáum stíl auki líkur á krabbameini, en innöndun á miklu magni af reyk valdi hreinlega bráðri köfnun. Hafi geislun frá pólon-210 orðið Alexander Litvinenko að bana þá hefur þurft til mjög mikið magn af efninu. Vegna skammdrægni alfageislanna, þá hefði þessi skammtur samt ekki verið greinanlegur utan líkama með venjulegum geislamæli. Efnið hefði helst verið greinanlegt í líkamsvessum frá honum og samkvæmt fréttum fyrr í dag, þá fannst efnið fyrst í þvagsýni Litvinenkos. Þeim sem umgengust hann ætti því ekki að vera mikil hætta búin. Einsdæmi er að geislavirkt efni sé misnotað með þessum hætti og Geislavarnir ríkisins munu fylgjast áfram með niðurstöðum þessara rannsókna, á dauða Litvinenkos annars vegar og hins vegar á því hversu mikið efnið dreifðist.
Sigurður Emil Pálsson
Fræðsluefni um líffræðileg áhrif geislunar: http://www.gr.is/fraedsluefni/geislavirkni/nr/24
Heimasíða Health Protection Agency í Bretlandi
http://www.hpa.org.uk/
Yfirlýsing Health Protection Agency um rannsókn á dauða Alexander Litvinenko http://www.hpa.org.uk/hpa/news/articles/press_releases/2006/241106_litvinenko.htm
Frétt BBC um rannsókn á dauða Alexander Litvinenko http://news.bbc.co.uk/2/hi/uk_news/6180682.stm