Fréttir

Evrópusambandiđ krefst öruggari ljósabekkjanotkunar

10.1.2007

Vísindanefnd Evrópussambandsins hefur skilađ af sér áliti sem framkvćmdastjórn sambandsins vill ađ leiđi til endurskođunar á stađli um ljósabekki. Geislavarnir ríkisins taka virkan ţátt í samráđi um stađalinn. Einnig hefur Krabbameinsrannsóknastofnun alţjóđaheilbrigđismálastofnunarinnar (IARC) tengt ljósabekkjanotkun í ćsku viđ myndun sortućxla.

Framkvćmdastjórn Evrópusambandsins hefur ađ höfđu samráđi viđ ađildarlönd ađ innri markađi sínum, krafist ţess ađ stađall um ljósabekki sem gildir í Evrópu verđi endurskođađur og öryggi bekkjanna aukiđ. Ţetta er gert međ útgáfu kröfulýsingar sem lögđ hefur veriđ fyrir Evrópsku rafstađlasamtökin CENELEC og er dagsett 21. desember 2006. Ţar er vísađ í álit vísindanefndar sem framkvćmdastjórnin fól ađ kanna heilsuáhćttu vegna ljósabekkja og birt hefur niđurstöđur sínar.

Fréttatilkynning um álit vísindanefndar er hér (á ensku) ásamt tenglum á vísindaálitiđ:

http://ec.europa.eu/health/ph_risk/committees/04_sccp/sccp_cons_03_en.htm

Gert er ráđ fyrir ađ breytingar á ljósabekkjastađlinum taki tvö ár. CENELEC hefur stofnađ vinnuhóp međ ţađ verkefni ađ setja fram tillögur um nauđsynlegar breytingar á stađlinum. Geislavarnir ríkisins eiga fulltrúa í ţeim hópi ásamt öđrum Norđurlandaţjóđum. Löggjöf um ljósabekki er sambćrileg á Norđurlöndum og byggir á umrćddum stađli.

IARC gaf út í lok síđasta árs nýtt álit á tengslum húđkrabbameins og notkunar ljósabekkja og kemst ađ líkum niđurstöđum og vísindanefnd Evrópusambandsins.

Fréttatilkynning IARC er hér (á ensku):

http://www.iarc.fr/ENG/Press_Releases/pr171a.html

IARC ályktar m.a. eftirfarandi:

  • Fólk sem byrjar ungt ađ nota ljósabekki eykur hćttuna á sortućxlum. Tiltćk gögn benda til 75% aukningar.
  • Ljósabekkjanotkun skađar ónćmiskerfi húđar.
  • Engin jákvćđ heilsufarsleg áhrif fylgja notkun ljósabekkja.

Geislavarnir ríkisins hafa undanfarin ár í samvinnu viđ Landlćknisembćttiđ, Félag íslenskra húđlćkna og Krabbameinsfélagiđ hvatt til ţess ađ ungt fólk noti ekki ljósabekki sérstaklega fermingarbörn. Skođanakannanir Gallups benda til ţess ađ dregiđ hafi úr ljósabekkjanotkun ungs fólks milli áranna 2004 og 2005 en könnun á síđasta ári (2006) var ekki afdráttarlaus um ţetta. Stofnunin og samstarfsađilar hennar munu áfram beita sér á ţessu sviđi.

Fyrri frétt um álit vísindanefndar