Fréttir
Ný áhugaverð leiðbeiningarit um geislavarnir frá ICRP
Nýju ritin frá ICRP eru:
ICRP 100, Human Alimentary Tract Model for Radiological Protection
Þetta rit kemur í stað eldra rits (ICRP Publication 30, 1979) og fjallar um nýtt reiknilíkan vegna geislabyrði af völdum geislavirkra efna sem berast inn í meltingarkerfi líkamans. Þetta líkan verður í framtíðinni notað af hálfu ICRP ásamt reiknilíkani fyrir öndunarveg líkamans (HRPM, ICRP, 1994, a,b) við mat á geislabyrði vegna geislavirka efna sem berast inn í líkamann.
ICRP 101, Assessing dose of the Representive Person for the Purpose of Radiation Protection of the Public and The Optimisation of Radiological Protection: Broadening the Process.
Hér er í raun um að ræða tvö leiðbeiningarit í sömu útgáfunni, þar sem það fyrra fjallar um áætlað geislaálag viðmiðunareinstaklings í þjóðfélaginu, til þess að tryggja að almenningur sé tryggilega varinn vegna notkunar jónandi geislunar. Hins vegar er um að ræða nýtt leiðbeiningarit þar sem fjallað er um bestun (optimisation), en bestun er ein af grundvallarþáttum árangursríkra geislavarna.
Á vefsetri ICRP voru nýlegar birt eftirfarandi rit til skoðunar og athugasemda.
- Radiological Protection in Medicine
- Managing Patient dose in Multi-Detector Computed Tomography (MDCT)
Einnig er þar aðgengileg nýjasta útgáfa af drögum að nýjum grunnleiðbeiningum ICRP en gert er ráð fyrir að þau verði samþykkt til útgáfu á fundi Aðalnefndar ráðsins 21. - 23. mars. n.k..
16. janúar 2007
GE