Fréttir

Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2005

2.2.2007

Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu með niðurstöðum mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi. Styrkur efnanna er í öllum tilvikum vel innan marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Niðurstöður mælinga benda til að um litlar breytingar sé að ræða á styrk sesíns síðustu árin, almennt fara meðalgildi þó lækkandi. Skýrsluna, ?Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2005 má nálgast hér á PDF formi.

Í skýrslunni eru teknar saman vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins á geislavirku sesíni (Cs-137) í umhverfinu og í matvælum árið 2005. Sesín-137 var mælt í andrúmslofti, (svifryki), úrkomu, kúamjólk (ferskri mjólk og mjólkurdufti), lambakjöti, sjó, þangi, fiski og gæsakjöti.

Í mjólk mælist styrkur sesíns að jafnaði tæpt 1 Bq/kg og í mjólkurdufti 10 Bq/kg. Styrkur sesíns í lambakjöti er mjög breytilegur yfir landið og spannar vítt bil, 3-33 Bq/kg.

Í sjó mælist styrkur sesíns 1,3-3,2 Bq/m3. Hæstur styrkur mælist jafnan í pólsjó fyrir norðan og vestan land. Styrkur Tc-99 (teknetín-99) í sjó mælist á bilinu 0,07-0,2 Bq/m3. Í þangi mælist styrkur sesíns á bilinu 0,1-0,3 Bq/kg og í fiski á bilinu 0,1-0,4 Bq/kg.

Styrkur sesíns í íslenskum matvælum er í öllum tilvikum vel innan alþjóðlegra viðmiðunarmarka í milliríkjaverslun, sem eru 1000 Bq/kg.

Í andrúmslofti er styrkur sesíns < 3 μBq/m3 og í úrkomu < 1 mBq/l.
Styrkur gammageislunar er mældur stöðugt við fjórar sjálfvirkar veðurstöðvar Veðurstofu Íslands, þ.e. á Bolungarvík, Raufarhöfn, Akurnesi og í Reykjavík, auk þess sem hann hefur verið mældur um árabil á Rjúpnahæð. Styrkur geislunar er almennt lágur, eða 40-80 nSv/klst.

Febrúar 2007.