Fréttir
Nýtt ađvörunarmerki vegna geislahćttu
Ađvörunarmerki jónandi geislunar hefur veriđ notađ áratugum saman. Ţađ er ţriggja laufa tákn međ punkti í miđju (sjá mynd)
Merking ţessa tákns er ţó ekki auđskilin ţeim sem ekki ţekkja ţađ fyrir. Alvarleg slys (ţ.á.m. banaslys) hafa hlotist af ţví ađ fólk hefur umgengist lífshćttulega geislagjafa án ţess ađ gera sér grein fyrir hćttunni, t.d. tekiđ í sundur geislalćkningatćki međ sterkum geislagjafa. Ţađ ţótti ţví brýnt ađ koma fram međ nýtt tákn sem vćri ţannig ađ hćttan vćri augljós, hvort sem fólk ţekkti nokkuđ til geislunar eđa ađvörunartákna tengdum henni. Nokkur tákn voru hönnuđ og ţau síđan prófuđ í 11 löndum. Ađ ţessari könnun lokinni var síđan eitt táknanna valiđ og ţađ hefur nú veriđ skilgreint í alţjóđlegum stađli, ISO 21482.
Nýja ađvörunarmerkinu er ekki ćtlađ ađ koma í stađ ţess gamla, heldur á ađ nota ţađ til viđbótar. Nýja merkiđ á einungis ađ nota á eđa viđ hćttulega geislagjafa, ekki t.d. á hurđir eđa umbúđir. Tćki sem inniheldur hćttulegt geislavirkt efni getur t.d. veriđ međ gamla merkinu á ytra byrđi, enda er ţá gengiđ ţannig frá efninu ađ engin hćtta starfar af viđ venjulega notkun tćkisins. Sé tćkiđ hins vegar tekiđ í sundur, ţá á nýja merkiđ ađ blasa viđ.
Nánari upplýsingar um nýja merkiđ (ţ.á.m. útlit ţess) og hvernig ţađ skuli notađ má finna á vefsíđu Alţjóđa kjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA.