Fréttir
Yfirlýsing Geislavarna Norđurlanda um minni geislun í ljósabekkjum
Geislavarnir Norđurlanda hafa sent frá sér yfirlýsingu um leiđir til ađ draga úr líkum á húđkrabba frá ljósabekkjum.
Norrćnar stofnanir á sviđi geislavarna og heilbrigđismála í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíţjóđ og Íslandi telja ţađ vera mikilvćgt ađ minnka magn útfjólublárrar geislunar sem almenningur fćr frá ljósabekkjum í ţeim tilgangi ađ minnka líkur á húđkrabbameinum.
Geislavarnastofnanirnar hafa lagt til viđ evrópskar stađlastofnanir og framleiđendur ađ útbúin verđi ný gerđ af veggspjöldum fyrir sólbađsstofur međ geislunartíma og varúđarorđum ţar sem eftirfarandi komi fram:
- Geislunartími verđi miđađur viđ ţann tíma sem húđ ţarf til ađ verđa brún fremur en viđ ţann tíma sem hún ţolir áđur en hún brennur. Miđađ verđi viđ húđ sem á auđvelt međ ađ taka lit (húđgerđ III og IV).
- Einstaklingar međ viđkvćma húđ (húđgerđ I og II) sem ekki taka lit eđa eiga erfitt međ ţađ án ţess ađ sólbrenna eiga ekki ađ nota ljósabekki. Húđ ţeirra mun ekki verđa brún međ stuttum ljósatímum og litlum skömmtum útfjólublárrar geislunar.
Norrćnu stjórnvöldin taka undir nýlegar niđurstöđur vísindanefndar Evrópusambandsins um ljósabekki (skammstafađ á ensku SCCP). Ţar segir ađ útfjólublá geislun, hvort sem hún er UVA eđa UVB – geislun, auki líklega hćttu á illkynja sortućxlum í húđ og hugsanlega í augum. Sérlega mikilvćgar eru ráđleggingar nefndarinnar um ađ geislun í ljósabekkjum skuli ekki vera meiri en frá hitabeltissól (ţ.e. minni en UV-gildi 11) og ađ ungt fólk (yngra en 18 ára) og fólk međ viđkvćma húđ (húđgerđ: I og II) eigi alls ekki ađ nota ljósabekki.
Framkvćmdastjórn sambandsins hefur lagt ţađ verkefni fyrir rafstađlasamtök Evrópu, CENELEC ađ taka fullt tillit til álits vísindanefndarinnar í tćknilegum stađli um ljósabekki.
Slóđ á fréttatilkynningu Evrópusambandsins um vísindaálitiđ
Slóđ á norrćnt álit um ljósabekki (2005)
Slóđ međ upplýsingum um húđgerđir
Frekari upplýsingar veitir Ţorgeir Sigurđsson, thorgeir@gr.is 552 8200
Eldri fréttir um ljósabekki: