Fréttir
Nýtt leiðbeiningarit um röntgentæki sem notuð eru við leit í farangri og til efnagreininga.
Nýtt leiðbeiningarit Geislavarna ríkisins um skermuð röntgentæki sem notuð eru við öryggisleit og til efnagreininga í iðnaði má nú finna á vefsíðu stofnunarinnar. Ekki hefur verið sett sérstök reglugerð um notkun slíkra tækja hérlendis en ákvæði laga nr. 44/2002 um geislavarnir og ákvæði reglugerðar nr. 264/2003 um hámörk geislunar starfsmanna og almennings vegna starfsemi þar sem notuð er jónandi geislun, ná engu að síður til allrar notkunar þessara röntgentækja.
Á Íslandi eru nokkrir tugir umræddra tækja. Flest eru þau notuð við farangursleit á Keflavíkurflugvelli og öðrum flugvöllum landsins, en mörg tæki eru einnig notuð í gæðaeftirliti hjá iðnfyrirtækjum og í efnagreiningum hjá rannsóknastofum.
Um miðjan maí-mánuð verður haldinn fræðslufundur hjá Geislavörnum fyrir notendur þessara röntgentækja. Á fundinum verður stofnunin og hlutverk hennar kynnt og gerð grein fyrir reglum um geislavarnar röntgentækja sem ekki eru í notuð við læknisfræðilega myndgreiningu. Tímasetning fundarins verður kynnt síðar.