Fréttir

Sameining sænsku geislavarnastofnunarinnar og kjarnorkueftirlitsins

30.4.2007

Sænsk stjórnvöld tilkynntu síðast liðinn föstudag, 20. apríl, að þau hyggðust sameina geislavarnastofnun sænska ríkisins (Statens strålskyddsinstitut, SSI) og kjarnorkueftirlitið (Statens kärnkraftinspektion, SKI). Sameiningin mun taka gildi frá og með næstu áramótum.

Báðar þessar stofnanir eru rótgrónar og njóta virðingar innan lands sem erlendis, hvor á sínu sviði. Þeim var upphaflega ætlað að vinna að mismunandi verkefnum og þar sem viðfangsefnin skarast (í eftirliti með kjarnorkuiðnaði og í viðbúnaði gegn geislavá), þá var þeim ætlað að hafa visst mótvægi hvor við aðra. Stofnanirnar hafa í tímans rás færst nær hvor annarri og nú vilja stjórnvöld nýta samlegðaráhrif og sameina þessar stofnanir.

Nánari upplýsingar um fyrirhugaða sameiningu má fá á vefsíðu SSI:

http://www.ssi.se/News/newsEntire.asp?ID=291&MenueType=2&Menu2=Nyhetsarkiv

Sjá einnig fréttatilkynningu sænskra stjórnvalda:

http://www.regeringen.se/sb/d/9023/a/80782