Fréttir
Fræðsluefni um geimgeislun og geislaálag flugáhafna í millilandaflugi
Á vef stofnunarinnar er nú birt fræðsluefni um geimgeislun og geislaálag flugáhafna í millilandaflugi. Samkvæmt reglugerð nr. 627/2003 teljast flugáhafnir í millilandaflugi til geislastarfsmanna og því á að hafa eftirlit með því geislaálagi sem þær verða fyrir við vinnu sína.
Lofthjúpur jarðar verndar jörðina gegn geimgeislun sem er náttúruleg geislun og á að mestu á upptök sín utan sólkerfisins. Við yfirborð jarðar er geimgeislunin mjög lítil og aðeins hluti þeirrar náttúrulegu geislunar sem menn verða fyrir. Í flughæð flugvéla í millilandaflugi er geislunin hinsvegar orðin það mikil að fylgjast þarf með geislaálagi flugáhafna. – sjá nánar fræðluefni um geimgeislun og fræðsluefni um geislun flugáhafna.
Í 13. grein laga nr. 44/2002 um geislavarnir segir: „Við starfsemi sem hefur í för með sér aukna náttúrulega jónandi geislun skal gripið til viðeigandi aðgerða til þess að verja starfsfólk gegn slíkri geislun“. Millilandaflug fellur undir slíka starfsemi.
Í reglugerð 627/2003 um hámörk geislunar starfsmanna og almennings vegna starfsemi þar sem notuð er jónandi geislun eru nánari ákvæði um þau hámörk geislunar sem starfsmenn sem vinna við jónandi geislun mega verða fyrir. Fylgst skal með geislaálagi starfsmanna sem geta orðið fyrir meiri geislun en svarar til 1 mSv á ári, þar á meðal vegna aukinnar náttúrulegrar geislunar sem fylgir starfi. Flugáhafnir í millilandaflugi falla í þann flokk starfsmanna sem fylgjast þarf með.
Íslensk lagaákvæði taka mið af lagaumhverfi Evrópusamandsins. Norrænar geislavarnastofnanir hafa í samvinnu við flugmálayfirvöld á Norðurlöndum sameinast um norræna túlkun á evrópskum og alþjóðlegum ákvæðum um eftirlit með geislaálagi flugáhafna.
Geislavarnir ríkisins og Flugmálastjórn vinna saman að útfærslu eftirlits með geislaálagi flugáhafna í millilandaflugi. Flugrekendur eiga að skipuleggja vinnu flugliða og flugleiðir með það að markmiði að geislaálag starfsmanna haldist undir 6 mSv á ári og fari ekki yfir 1 mSv hjá konum eftir að þær tilkynna að þær séu barnshafandi. Upplýsingum um geislaálag flugáhafna í millilandaflugi skal safnað og þær sendar Geislavörnum ríkisins árlega. Flugliðar í millilandaflugi eiga einnig að fá upplýsingar um eigið geislaálag árlega.