Fréttir
Ráđstefna IAEA um hlutverk vöktunar og rannsókna vegna nýtingar kjarnorku
Á síđustu árum hafa ć meiri efasemdir komiđ fram um notkun hefđbundinna orkugjafa (olíu og kola) vegna alvarlegra áhrifa sem hún getur haft á andrúmsloft jarđar. Nýting kjarnorku er nú ć meir til umrćđu sem ein lausn á ţessum alvarlega vanda. Kjarnorka hefur veriđ nýtt í um hálfa öld. Á ţessum tíma hafa kröfur um takmörkun mengunar umhverfis stóraukist. Mćlitćkni og ţekkingu á hegđun geislavirkra efna hefur fleygt fram á ţessum tíma. Hins vegar hefur samdráttur í kjarnorkuiđnađi leitt til fćkkunar sérfrćđinga og mörg ríki ráđa illa viđ ađ fylgja eftir ţeim markmiđum sem ţau hafa sett sér, t.d. um ađ geta fylgst međ hreinleika umhverfis. Sum ţessara markmiđa hafa einnig veriđ sett á veikum frćđilegum grunni, ţannig ađ vöktun umhverfis byggđ á ţeim verđur ómarkviss.
Alţjóđakjarnorkumálastofnunin (IAEA) gekkst ţví fyrir alţjóđlegri vísindaráđstefnu í Vínarborg, 23.-27. apríl, International Conference on Environmental Radioactivity: From Measurements and Assessments to Regulation, ţar sem fjallađ var um hlutverk vöktunar og rannsókna nú á tímum viđ stjórnun nýtingar kjarnorku og geislavirkra efna og hvar umbóta sé helst ţörf. Fjallađ var um marga ţćtti sem hafa áhrif á mat á magni og hegđun geislavirkra efna í umhverfinu, svo sem marktćkni sýnatöku, efnagreiningu og mćlitćkni, líkanagerđ og túlkun og ađ lokum hvernig nýta megi ţá vitneskju sem allt ţetta gefur. Mikil áhersla var á hvernig mćtti sýna fram á gćđi hvers af framangreindum ţáttum, allir hafa ţeir áhrif á lokaniđurstöđu. Ráđstefnan mun vonandi hjálpa til viđ ađ glćđa vitund um ađ átaks sé ţörf á ţessu sviđi og ađ mikilvćg verkefni bíđi úrlausnar.
Einn starfsmanna Geislavarna, Sigurđur Emil Pálsson, tók ţátt í ráđstefnunni og kynnti jafnframt áfanganiđurstöđur rannsókna sinna á veggspjaldi, Use of precipitation data for assessing radionuclide deposition. Rannsóknin byggist á ađ nota úrkomugögn til ađ meta magn og dreifingu geislavirks úrfellis.
Sjá nánar vefsíđu ráđstefnunnar á vefsetri IAEA