Fréttir
Viđhorfskönnun stađfestir ánćgju viđskiptavina.
Í byrjun 2005 var stefnumiđađ árangursmat (Balanced Scorecard) tekiđ í notkun sem stjórntćki hjá Geislavörnum ríkisins. Stefna stofnunarinnar var mótuđ og sett fram í stefnukorti ásamt markmiđum. Mćlikvarđar til ţess ađ meta árangur vegna einstakra markmiđa og ađgerđaráćtlun voru settir fram í skorkorti.
Árleg könnun á viđhorfum viđskiptavina stofnunarinnar til veittrar ţjónustu er mikilvćgur hluti í mati á árangri. Könnunin nćr til viđskiptavina liđins árs. Viđhorfskönnun var fyrst framkvćmd áriđ 2005.
Viđhorfskönnunin 2007 stađfestir ađ stofnunin hefur náđ góđum árangri. Viđhorf 80 - 90 % viđskiptavina stofnunarinnar til einstakra ţátta í ţjónustu hennar er jákvćtt en ađeins 2 - 6 % viđskiptavina hafa neikvćtt viđhorf til ţjónustunnar. Könnunin leiđir í ljós ţá ţćtti í starfseminni og framkvćmd einstakra skilgreinda verkferla ţar sem markmiđ hafa náđst og umbćtur skilađ árangri. Könnunin leiđir einnig í ljós nokkra ţćtti sem betur mega fara og verđa lagfćrđir. Ábendingar og tillögur frá ţeim sem tóku ţátt í viđhorfskönnuninni eru mjög mikilvćgar og verđur tillit tekiđ til ţeirra.
Geislavarnir fćra öllum ţeim er ţátt tóku í könnuninni bestu ţakkir og sérstaklega er ţakkađ fyrir tillögur og ábendingar sem nýtast vel til ađ bćta ţjónustu stofnunarinnar.