Fréttir
50 ára afmæli geislavarnanefndar Kjarnorkumálastofnunar OECD ríkjanna
Þann 21. mars 1957 skipaði stjórnarnefnd Kjarnorkumálastofnunar OECD ríkjanna,Nuclear Energy Agency, NEA starfshóp sem fjalla skyldi um lýðheilsu og öryggi vegna geislunar. Sá vinnuhópur markaði upphaf starfs á sdviði geislavarna hjá NEA.
Fyrstu árin var áhersla lögð á öflun upplýsinga um geislavirkni í umhverfi vegna tilrauna með kjarnavopn sem þá stóðu yfir sem og mat á tilfærslu þeirra í vistkerfinu. Eftir bann við tilraunum með kjarnavopn hefur verið lögð áhersla á þann þátt geislavarna er tengist kjarniðnaði. Einnig hefur aukin áhersla verið lögð á viðbúnað við geislaslysum. Nú síðustu ár hefur mikil áhersla verið lögð á þróun geislavarna almennt. Geislavarnanefndin hefur átt einstaklega gott samstarf við Alþjóða geislavarnaráðið, ICRP og haft veruleg áhrif á endurskoðun grunnleiðbeininga ICRP sem gefnar verða út bráðlega.
Á ráðstefnunni sem rúmlega 100 þátttakendum hafði verið boðið að taka þátt var bæði fjallað um árangur liðinna ára sem og helstu verkefni er bíða nefndarinnar.
Forstjóri NEA Luis Echávarre flutti aðalfyrirlestur ráðstefnunnar og fjallaði um störf nefndarinnar í sögulegu samhengi sem og mikinn árangur af starfi hennar. Formaður geislavarnanefndarinnar, Jacues Lochard, fjallaði um helstu verkefni hennar á næstu árum og þá sérstaklega um hvernig nefndin gæti stuðlað að bættum geislavörnum í aðildarlöndunum. Einnig fluttu fulltrúar frá Kanda, Japan og Frakklandi fyrirlestra auk fulltrúa Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, Alþjóða Geislavarnaráðsins og Evrópusambandsins.Allir þökkuðu þeir nefndinni góðan árangur af starfi hennar og óskuðu henni velfarnaðar á komandi árum.
Geislavarnir ríkisins taka virkan þátt í starfsemi nefndarinnar og á Sigurður M Magnússon forstjóri Geislavarna sæti í framkvæmdastjórn hennar auk þess að stýra starfi hóps sérfræðinga sem leggur mat á áhrif nýrra grunnleiðbeininga Alþjóða geislavarnaráðsins.