Fréttir
Nýtt geislaskimunarkerfi - samvinnuverkefni geislavarnastofnana Íslands og Finnlands
Nær öll ríki hafa einhvers konar búnað til geislaskimunar og flest þeirra hafa til þess margþættan búnað. Geislaskimun felur í sér að mælt er eins konar litróf geislunar (gammaróf) og mælingarnar eru endurteknar mjög ört, t.d. á 5 sekúndna fresti. Með því að skrá jafnframt staðsetningu mælingar (t.d. með GPS einingu) er hægt að kortleggja geislun á tilteknum svæðum t.d.úr flugvél, frá bíl eða jafnvel fótgangandi. Ríki beita geislaskimun víða, t.d. við að kortleggja náttúrulegan geislabakgrunn landa, kortleggja geislavirkt úrfelli og geta jafnvel fundið týnda geislagjafa. Á síðustu árum hafa jafnframt alþjóðlegar kröfur um geislaskimun í tengslum við löggæslu, landamæraeftirlit og tollgæslu stóraukist. Geislaskimunarkerfi eru venjulega mjög dýr, enda mjög sérhæfð og mikil þróunarvinna að baki. Auk mælitækninnar þarf mjög öfluga úrvinnslu gagna, sérstaklega ef kerfið á að geta skilað niðurstöðum og gefið aðvaranir byggðar á mati gagna í rauntíma, þ.e. á meðan að á mælingu stendur. Ódýrustu kerfin á almennum markaði kosta nálægt 10 milljónum króna..
Einn starfsmanna Geislavarna ríkisins hefur um árabil stýrt norrænni rannsóknarsamvinnu á sviði viðbúnaðar gegn geislavá og í geislavistfræði, sjá nánar www.nks.org og eldri frétt. Þetta hefur skapað náin og verðmæt tengsl við leiðandi sérfræðinga Norðurlanda á þessum sviðum. Vegna þessara tengsla bauðst Geislavörnum að taka þátt í þróunaverkefni geislavarnastofnunar Finnlands, STUK. Sú stofnun er ein sú fremsta í heimi á sviði greiningar á geislarófum og tækni henni tengdri. Þróunin fól í sér að byggja upp geislaskimunarkerfi úr fjöldaframleiddum einingum og hugbúnaði til rófgreiningar frá STUK og öðrum finnskum þróunaraðilum. Með forritun var þetta allt tengt saman í eitt samhæft kerfi.
Þessi aðferð við uppbyggingu geislaskimunarkerfis hefur marga kosti, sérstaklega þó þann að kerfið getur verið mjög fjölhæft vegna þess að það byggir á tengdum einingum sem má bæta við og breyta eftir þörfum. Tiltölulega auðvelt er því að laga kerfið að ólíkum verkefnum. Kostnaður Geislavarna er einnig einungis brot af verði kerfa á almennum markaði þar sem Geislavarnir ríkisins hafa einungis þurft að greiða fyrir fjöldaframleiddar einingar á almennum markaði. Hvorki hefur þurft að greiða fyrir hugvitið né hugbúnaðinn, en þar liggur nær allt verðmæti kerfisins.
Sú gerð kerfisins sem Geislavarnir hafa tekið í notkun telst frumgerð (e. prototype), en gefur þó strax mikla möguleika og er mjög fyrirferðarlítil. Stofnunin væntir því mikils af þessu samstarfi við STUK í framtíðinni, enda hefur aðstaða til geislaskimunar nú þegar tekið stórt stökk fram á við hérlendis.